Fréttir

true

Ríkið innheimti framvegis ógreidd meðlög

Áformað er að flytja starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins. Meginmarkmiðið er að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en hlutverk stofnunarinnar er að innheimta meðlög. Verkefnisstjórn um málið lagði til að innheimtumiðstöðin á Blönduósi, sem starfrækt er af Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, taki við verkefninu og að sú útfærsla verði unnin í samvinnu við dómsmálaráðuneytið. Í…Lesa meira

true

Bjarni gefur út rafbók með pistlum um Hvanneyri

Bjarni Guðmundsson prófessor og fyrrum kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri hefur á liðnum árum skrifað fjölda bóka um sitthvað sem tengist íslenskum landbúnaði; sögu búskapar og bútækni. Hefur hann með vinnu sinni náð að skrá fjölmargar heimildir sem hætt er við að ella hefðu glatast. En í gær, á fyrsta degi vetrar, varpaði hann…Lesa meira

true

Borgarsport opnað að nýju eftir breytingar

Síðdegis í gær var verslunin Borgarsport í Hyrnutorgi í Borgarnesi opnuð af nýjum eigendum. Boðið var upp á veitingar og tilboð fram á kvöld í tilefni dagsins. Systkinin Eva Karen Þórðardóttir og Þorsteinn Pálsson festu nýverið kaup á versluninni. Hafa þau gert breytingar á útliti verslunarinnar og vöruvali. Meðal annars hafa þau bætt við ýmsum…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta í hraunjaðrinum undir Ljósufjöllum

Hjónin á Miðhrauni hafa lært að leita lausna við erfiðar aðstæður. Viðtalið er endurbirting en upphaflega birtist það í 22. tölublaði Skessuhorns. Mikil uppbygging í ferðaþjónustu hefur átt sér stað á síðustu árum á Miðhrauni II á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar er fjölskylduvænn gististaður með húsum, íbúðum og herbergjum með eldunaraðstöðu, nokkurs konar þorp. Allt kúrir…Lesa meira

true

Reykur reyndist vatnsgufa

Slökkvilið Borgarbyggðar var um hádegisbilið í dag kallað út að Sæunnargötu 6 í Borgarnesi. Þar virtist sem reyk legði frá húsinu. Þegar slökkvilið mætti á staðinn kom í ljós að hitaveituvatn rann út í niðurföll og myndaðist gufa í hægviðrinu. Að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra var engu að síður ákveðið að fara inn í…Lesa meira

true

Auka greiðslumark í mjólk

Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2023 verði 149 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra. Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 117…Lesa meira

true

Skrifstofa starfsfólks flutt í nýju Þjóðgarðsmiðstöðina

Starfsfólk Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls hefur nú flutt skrifstofur sínar í nýju Þjóðgarðsmiðstöðina sem staðsett er að Sandhrauni 5, á Hellissandi. Í tilkynningu á Facebook-síðu Þjóðgarðsins segir að stefnt sé að því að opna Þjóðgarðsmiðstöðina fyrir almenning fljótlega á nýju ári.Lesa meira

true

Jóhanna Ósk ráðin framkvæmdastjóri Sæferða

Sæferðir í Stykkishólmi greina frá því á heimasíðu sinni að Jóhanna Ósk Halldórsdóttir hafi verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Tekur hún við starfinu af Gunnlaugi Grettissyni sem sinnt hefur starfinu síðustu ár. Jóhanna Ósk er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún tók við stöðu svæðisstjóra Eimskips á Vestfjörðum fyrr á árinu og…Lesa meira

true

Nýr umferðarvefur Vegagerðarinnar

Vegagerðin hefur opnað vefinn www.umferdin.is. Sá vefur sinnir því hlutverki sem færðarkort Vegagerðarinnar hefur sinnt um árabil. Á vefnum birtast færðar- og veðurupplýsingar Vegagerðarinnar en hann auðveldar Vegagerðinni að bæta og auka alla upplýsingagjöf og þróa hana til framtíðar. Í vetur verða bæði nýi vefurinn og færðarkortið á vef Vegagerðarinnar uppfært samhliða á meðan reynsla…Lesa meira

true

Boða til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu

Forsætisráðherra býður til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu í Björtuloftum í Hörpu þriðjudaginn 25. október nk. kl. 16:00-17:30 vegna vinnu starfshóps gegn hatursorðræðu. Um þessar mundir skoðar starfshópurinn hvort stjórnvöld skuli setja heildstæða áætlun um samhæfðar aðgerðir gegn hatursorðræðu en hópurinn leggur áherslu á víðtækt samráð í vinnu sinni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur opnunarávarp á…Lesa meira