Frá Stykkishólmi. Baldur við bryggju. gj.

Jóhanna Ósk ráðin framkvæmdastjóri Sæferða

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sæferðir í Stykkishólmi greina frá því á heimasíðu sinni að Jóhanna Ósk Halldórsdóttir hafi verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Tekur hún við starfinu af Gunnlaugi Grettissyni sem sinnt hefur starfinu síðustu ár. Jóhanna Ósk er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún tók við stöðu svæðisstjóra Eimskips á Vestfjörðum fyrr á árinu og mun gegna því starfi áfram.\r\n\r\nÁður starfaði Jóhanna Ósk hjá fiskeldisfyrirtækinu Hábrún sem er með aðsetur á Ísafirði. Hún þekkir því sjávarútveginn á Vestfjörðum vel. „Siglingar ferjunnar Baldurs eru mikilvægur hlekkur í almenningssamgöngum á svæðinu og er mikill fengur að því að fá Jóhönnu í þetta verkefni og þannig samþætta enn betur alla starfsemi á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.\r\n\r\nSæferðir eru í eigu Eimskips. Gunnlaugur Grettisson hefur verið framkvæmdastjóri þar síðustu ár en er nú framkvæmdastjóri Eimskips í Svíþjóð með aðsetur í Helsingborg. Sæferðir reka tvö skip í siglingum á Breiðafirði, annars vegar ferjuna Baldur, sem siglir milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey, og hins vegar Særúnu, sem notuð er í skoðunarferðum um Breiðafjörð.  -",
  "innerBlocks": []
}
Jóhanna Ósk ráðin framkvæmdastjóri Sæferða - Skessuhorn