{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áformað er að flytja starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins. Meginmarkmiðið er að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en hlutverk stofnunarinnar er að innheimta meðlög. Verkefnisstjórn um málið lagði til að innheimtumiðstöðin á Blönduósi, sem starfrækt er af Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, taki við verkefninu og að sú útfærsla verði unnin í samvinnu við dómsmálaráðuneytið.\r\n\r\nÍ úttekt Ríkisendurskoðunar á rekstri og starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga eru lagðar fram fjórar tillögur. Þar er m.a. lagt til að ábyrgð á innheimtu meðlaga verði endurskilgreind og að innheimtumönnum ríkissjóðs verði falin ábyrgð á verkefninu. Þá er lagt til að innheimtumönnum ríkissjóðs verði falið að meta þau verðmæti sem felast í kröfusafni stofnunarinnar, en í því sambandi telur embættið rétt að kröfusafnið í heild flytjist til ríkisins með samkomulagi við eigendur Innheimtustofnunar. Enn fremur er lagt til að gerð verði sérstök greining á gagnagrunni núverandi innheimtukerfis, sem og þeim kerfum sem til staðar eru hjá innheimtumönnum ríkissjóðs, eftir atvikum í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins. „Loks er lagt til að viðtökuaðili verkefnanna, í samráði við ráðuneyti, marki stefnu um framkvæmd innheimtu meðlaga með skilgreindum mælikvörðum um árangur. Í því sambandi þarf m.a. að endurskoða lagaumhverfi meðlagsinnheimtu, skjalfesta verklagsreglur og koma á tilhlýðilegu gæðakerfi,“ segir á vef Ríkisendurskoðunar.",
"innerBlocks": []
}