
Eva Karen og Þorsteinn eru frá Signýjarstöðum í Hálsasveit, en þau eru nýir eigendur að Borgarsporti. Ljósm. mm.
Borgarsport opnað að nýju eftir breytingar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðdegis í gær var verslunin Borgarsport í Hyrnutorgi í Borgarnesi opnuð af nýjum eigendum. Boðið var upp á veitingar og tilboð fram á kvöld í tilefni dagsins. Systkinin Eva Karen Þórðardóttir og Þorsteinn Pálsson festu nýverið kaup á versluninni. Hafa þau gert breytingar á útliti verslunarinnar og vöruvali. Meðal annars hafa þau bætt við ýmsum vörumerkjum og fæðubótarefnum þannig að þar er hægt að kaupa ýmislegt til að hefja heilsuvegferðina, hvort sem fólk stefnir á útivist, líkamsrækt eða hlaup.\r\n\r\nGreinilegt var að margir voru áhugasamir að kynna sér breytingar á versluninni því fjölmenni var mætt á slaginu klukkan 16 þegar opnað var. Verslunin Borgarsport á sér langa sögu í Borgarnesi. Hún var fyrst opnuð fyrir um fjórum áratugum en á þeim tíma hafa kaupmenn verið hátt í tíu talsins.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"57211,57212,57213,57214\"]",
"innerBlocks": []
}