
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri. Samsett mynd/ Þórunn Edda Bjarnadóttir.
Bjarni gefur út rafbók með pistlum um Hvanneyri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bjarni Guðmundsson prófessor og fyrrum kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri hefur á liðnum árum skrifað fjölda bóka um sitthvað sem tengist íslenskum landbúnaði; sögu búskapar og bútækni. Hefur hann með vinnu sinni náð að skrá fjölmargar heimildir sem hætt er við að ella hefðu glatast. En í gær, á fyrsta degi vetrar, varpaði hann á veraldarvefinn nýjustu afurð sinni, sem því er ekki áþreifanleg líkt og fyrri bækur hans; gefur út rafbók sem öllum tölvu- og símatengdum er aðgengileg án endurgjalds.\r\n\r\nRafbók Bjarna nefnist „Hvanneyrar-pistlar Bjarna Guðmundssonar: þættir um sögu og þróun byggðarhverfis og búnaðarskóla.“ Eins og titillinn ber með sér skráir Bjarni þarna ýmsar heimildir sem hann hefur safnað í áranna rás og tengjast Hvanneyri með einum eða öðrum hætti, en að Hvanneyri kom hann fyrst sem nemandi haustið 1961, eða fyrir réttu 61 ári. Pistlana brýtur Þórunn Edda dóttir hans um í rafbókarformið. Þarna eru samankomnar á liðlega 180 síðum, skreyttar allmörgum ljósmyndum og teikningum, greinar sem allir sem hafa áhuga á Hvanneyri og sögu staðarins geta fært sér í nyt, lesið í bútum milli mjalta og messu, eða í einni beit; allt eftir behag.\r\n\r\n„Nú ætla ég að bjóða þeim vinum mínum, sem um hann sig kæra, aðgang að bók, sem hjá mér hefur orðið til á all-löngum tíma. Uppátækið er dálítil tilraun mín í anda tímanna til rafrænnar útgáfu bókarefnis sem ólíklegt er að hafi mjög almenna skírskotun,“ skrifaði Bjarni þegar hann fylgdi nýjustu afurð sinni úr hlaði á björtum fyrsta vetrardegi. Rafbókin Hvanneyrar-pistlar Bjarna Guðmundssonar: þættir um sögu og þróun byggðarhverfis og búnaðarskóla liggur á vefslóðinni; <a href=\"http://issuu.com/bjgudm\">issuu.com/bjgudm</a>",
"innerBlocks": []
}