Boða til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Forsætisráðherra býður til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu í Björtuloftum í Hörpu þriðjudaginn 25. október nk. kl. 16:00-17:30 vegna vinnu starfshóps gegn hatursorðræðu.\r\n\r\nUm þessar mundir skoðar starfshópurinn hvort stjórnvöld skuli setja heildstæða áætlun um samhæfðar aðgerðir gegn hatursorðræðu en hópurinn leggur áherslu á víðtækt samráð í vinnu sinni.\r\n\r\nKatrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur opnunarávarp á fundinum og dr. María Rún Bjarnadóttir, verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá Ríkislögreglustjóra, flytur erindi. Að því loknu verður fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem ræða sín á milli um aðgerðir sem grípa megi til í því augnamiði að vinna gegn hatursorðræðu og haturstjáningu í íslensku samfélagi.\r\n\r\nÖll eru velkomin en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á <a class=\"secure external\" title=\"skráningarsíðu fundarins (Opnast í nýjum vafraglugga)\" href=\"https://forms.office.com/r/0tB36fjayF\" target=\"_blank\" rel=\"noreferrer noopener\">skráningarsíðu fundarins</a>.",
"innerBlocks": []
}
Boða til samráðsfundar um aðgerðir gegn hatursorðræðu - Skessuhorn