Fréttir

true

Viljayfirlýsing undirrituð um íþróttamiðstöð í Búðardal

Eykt ehf. hefur lýst yfir vilja til að taka að sér verk er varðar undirbúning að uppbyggingu Íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, og Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Dalabyggðar. Í vor fór fram alútboð á verkinu og hefur Eykt…Lesa meira

true

MAST segist taka dýravelferðarmál alvarlega

Matvælastofnun sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna mynda sem birtust á samfélagsmiðlum af hestum í Borgarfirði. Þar vísar MAST til mynda sem Steinunn Árnadóttir, hestakona í Borgarnesi, birti á Facebook-síðu sinni fyrr í vikunni. Myndirnar eru af illa höldnum hestum sem Steinunn hefur fylgst með í þó nokkurn tíma. Þann 31. ágúst s.l. birti…Lesa meira

true

Selja félagsheimilið á Staðarfelli

Byggðarráð Dalabyggðar hefur samþykkt að félagsheimilið á Staðarfelli fari í sölumeðferð. Á fundi byggðarráðs 11. október s.l. var lagt fram lóðarblað með afmörkun lóðar í kringum félagsheimilið og samþykkti ráðið lóðamörkin fyrir sitt leyti. Skýrsla Menningarmálanefndar Á síðasta ári gerði Menningarmálanefnd Dalabyggðar ítarlega skýrslu um félagsheimili í sveitarfélaginu. Þá voru metnir styrkleikar, veikleikar, ógnanir og…Lesa meira

true

Nýr snjótroðari á leið til Grundarfjarðar

Tveir fulltrúar frá Skíðasvæði Snæfellsness fóru á dögunum í ferð til Þýskalands til að skoða snjótroðara fyrir svæðið. Mikil þörf er að eiga slíkt tæki þegar snjórinn kemur loksins enda gjörbreytir það aðstæðum í fjallinu að geta troðið brautir fyrir skíðaiðkendur. Síðustu misseri hafa þau treyst á snjótroðara í annara eigu en nú er svo…Lesa meira

true

Gömlu dansa ball í Tónbergi – Myndband

Í síðustu viku var kennsla í Tónlistarskóla Akraness með óhefðbundnum hætti og nemendum boðið upp á ýmis námskeið í stað hefðbundinna tónlistartíma. Sum námskeiðanna voru einnig opin utan skólans. Var þetta fjörleg dagskrá og ýmsar áskoranir. Meðal annars var haldið opið gömlu dansa ball í Tónbergi, þar sem nemendur komu saman ásamt kennurum sínum og…Lesa meira

true

Engin háls- nef- og eyrna læknaþjónusta hjá HVE sem stendur

Enginn háls- nef- og eyrnalæknir hefur sinnt þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands síðan í ágúst en þá fór læknirinn sem sinnti því starfi í veikindaleyfi. Um tímabundið ástand er að ræða en ekki hefur tíðkast hjá stofnuninni að ráða inn afleysingu í slíkum tilfellum. Fólki sem liggur á að komast að hjá slíkum sérlækni er bent…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Akraneskaupstaður var eitt af sex sveitarfélögum sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar í ár, en auk sveitarfélaganna hlutu viðurkenningu 59 fyrirtæki og 11 opinberir aðilar. Viðurkenningarnar voru veittar á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar, Jafnrétti er ákvörðun, sem var haldin við hátíðlega athöfn þann 12. október. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er tilgangur verkefnisins m.a. að…Lesa meira

true

Síminn hefur kveikt á 5G sendum í Grundarfirði

Í síðustu viku voru starfsmenn Mílu að störfum við að bæta fjarskiptasamband í Grundarfirði. Nýr sendir var settur upp á Gamla pósthúsið, sem einnig er Símstöðin, og er staðsett í efri hluta bæjarins. Það er 5G sendir og var kveikt á honum síðasta föstudag svo nú er komið 5G samband í Grundarfirði fyrir viðskiptavini Símans.…Lesa meira

true

Græn og væn framtíðarverkefni í íslenskum landbúnaði

Dagur landbúnaðarins fer fram á Hótel Nordica – VOX club, á morgun föstudaginn 14. október frá klukkan 10.00 – 12.00 undir yfirskriftinni Græn Framtíð. Á málþinginu verða fjölmörg áhugaverð erindi um áskoranir og framtíðarverkefni í íslenskum landbúnaði. Eftir erindin verða pallborðsumræður. Fundarstjóri er Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri BÍ. Viðburðinum verður streymt á Facebook-síðu Bændasamtakanna. Dagskrá málþingsins…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hefur samþykkt kaup á landi Akrakots í Hvalfjarðarsveit

Á vefsíðu Akraneskaupstaðar birtist í dag eftirfarandi tilkynning: Nýverið voru samþykkt á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar kaup á landi Akrakots sem er í Hvalfjarðarsveit í jaðri Akraness. Í framhaldinu var gengið frá samningi við eigendur að landi og eignum Akrakots. Eftir að málið var kynnt fulltrúum Hvalfjarðarsveitar hefur sveitarfélagið óskað eftir formlegu erindi og boðið til…Lesa meira