Fréttir

true

Leikskólinn Akrasel tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna

Leikskólinn Akrasel á Akranesi er tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Ein verðlaun eru veitt í þeim flokki til skóla eða annarrar menntastofnunar sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Alls voru fjórir skólar tilnefndir. Akrasel er tilnefndur fyrir markvissa, skapandi og faglega vinnu við umhverfismennt og öfluga…Lesa meira

true

Snæfell með sterkan sigur á Þór Akureyri

Snæfell og Þór Akureyri mættust í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór rólega af stað og eftir fimm mínútna leik var staðan jöfn 7:7. Þá tóku heimakonur góðan kipp, spiluðu feykigóða vörn og hittu vel í sínum skotum á meðan gestirnir voru í veseni og skoruðu…Lesa meira

true

Viðbrögð framhaldsskóla við ofbeldi

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað skólastjórnendur á fund um viðbrögð við kynferðisofbeldi í framhaldsskólum. Á fundinum verður farið yfir stöðuna á innleiðingu viðbragðsáætlana og kynningu þeirra í skólunum. Kynnt verður fyrirmynd að viðbragðsáætlun sem skólar geta nýtt þar sem áætlun hefur ekki verið innleidd eða skerpa þarf verklagið. Markmiðið er að bregðast við ákalli um…Lesa meira

true

Átta menningarverkefni styrkt í Borgarbyggð

Menningarsjóður Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 29. september síðastliðinn að veita alls átta verkefnum styrki og var heildarupphæðin tvær milljónir króna. Þau verkefni sem fengu eftirtalda styrki voru: Íbúasamtök Hvanneyrar og nágrennis fyrir Jólagleði á Hvanneyri 11. desember kr. 200.000, Leikdeild Skallagríms fyrir Jólastund Leikdeildarinnar, skemmtikvöld í samvinnu við Kirkjukór Borgarneskirkju og fleiri listamanna kr.…Lesa meira

true

Átthagafræðin í Grunnskóla Snæfellsbæjar tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna

Í gær var tilkynnt að kennsla í átthagafræði við Grunnskóla Snæfellsbæjar er tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi þróunarverkefna í skólum. Fyrir verðlaununum standa Samtök áhugafólks um skólaþróun. Eins og fjallað hefur verið um í Skessuhorni er átthagafræðin í Grunnskóla Snæfellsbæjar þróunarverkefni sem beinist að því að efla jákvæð og virk tengsl skóla og…Lesa meira

true

Norðurál valið umhverfisfyrirtæki ársins

Kolefnisspor áls frá Norðuráli er með því lægsta sem gerist í heiminum Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru tilkynnt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins í gær. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti verðlaunin. Umhverfisfyrirtæki ársins er Norðurál en framtak ársins á sviði umhverfismála á Sjóvá. Kolefnisspor áls frá Norðuráli er með því lægsta sem gerist í heiminum…Lesa meira

true

Býður kettinum Skottlausa Höskuldi sérstaklega á sýningu

Uppistandarinn Þórhallur Þórhallsson mun verða með uppistandssýningu á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi á morgun, föstudaginn 7. október. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Þórhallar sem hefur komið víða við á ferli sínum. Hvenær byrjaðir þú að vera með uppistand og hvernig kom það til? ,,Í fyrsta skipti sem ég var með uppistand var ég bara…Lesa meira

true

Rafmagn tekið af næstu nótt á hluta Akraness

Veitur kynna að rafmagn verður tekið af nokkrum húsum á Akranesi aðfararnótt föstudagsins 7. október frá klukkan 00:05 til 05:30. Rafmagn verður þá tekið af eftirfarandi húsum: Skagabraut 33 til 50, Sandabraut, Jaðarsbraut 3 til 25 og Garðabraut 2A. Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.isLesa meira

true

„Mikil áskorun að leika í nýrri deild eftir að hafa fallið“

Rætt við Sveinbjörn Geir Hlöðversson formann Kára um tímabilið í sumar Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi varð í fimmta sæti í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar með 34 stig, vann tíu leiki, gerði fjögur jafntefli og tapaði átta leikjum. Liðið lék í 3. deild í sumar í fyrsta skipti síðan árið 2017 en á…Lesa meira

true

Brynjar ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvík

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvíkur tilkynnti á FB síðu sinni í hádeginu að félagið hafi ráðið Brynjar Kristmundsson sem nýjan meistaraflokksþjálfara félagsins. Samningur Brynjars er til tveggja ára. Fram kemur á síðunni að undanfarin þrjú tímabil hafi Brynjar starfað sem aðstoðarþjálfari félagsins og var hann fyrsti kostur félagsins þegar kom að því að ráða nýjan þjálfara.…Lesa meira