
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitir forsvarsfólki umhverfismála Norðuráls verðlaunin. F.v. Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta, Steinunn Dögg Steinsen, yfirmaður umhverfis- og öryggismála og Gunnar Guðlaugsson, forstjóri. Ljósm. SA.
Norðurál valið umhverfisfyrirtæki ársins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<em><strong>Kolefnisspor áls frá Norðuráli er með því lægsta sem gerist í heiminum</strong></em>\r\n\r\nUmhverfisverðlaun atvinnulífsins voru tilkynnt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins í gær. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti verðlaunin. Umhverfisfyrirtæki ársins er Norðurál en framtak ársins á sviði umhverfismála á Sjóvá.\r\n\r\nKolefnisspor áls frá Norðuráli er með því lægsta sem gerist í heiminum og hefur fyrirtækið sett sér það markmið að ná fullu kolefnishlutleysi. Norðurál er þátttakandi í þróunar- og nýsköpunarverkefnum sem miða að því að þróa tæknilega lausnir sem gera það mögulegt. Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum umhverfisvænt ál undir vöruheitinu Natur-Al™. Það er markaðssett sem íslenskt ál, er rekjanlegt frá upphafi til enda framleiðsluferilsins og vottað af óháðum aðilum. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor Natur-Al™ einungis fjórðungi af heimsmeðaltalinu.\r\n\r\nÍ umsögn valnefndar segir meðal annars að markmið fyrirtækisins séu skýr og aðgengileg en aðgerðaáætlun Norðuráls í loftslagsmálum samanstendur af vel skilgreindum aðgerðum sem er leiðarvísir fyrirtækisins að settu marki.\r\n\r\n„Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í rekstri Norðuráls og þakklát fyrir þann heiður sem fyrirtækinu er sýndur með því að vera útnefnt umhverfisfyrirtæki ársins 2022. Það er áhugaverð staðreynd að ef öll álver í heiminum framleiddu ál með sama hætti og Norðurál myndi losun CO2 á heimsvísu minnka um 550 milljón tonna á ári. Til samanburðar nemur heildarlosun Íslands 4,5 milljónum tonna á ári. Við hjá Norðuráli vinnum stöðugt að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart Parísarsamningnum höfum við sett okkur markmið um að árið 2030 verði losun gróðurhúsalofttegunda (utan viðskiptakerfis ESB) um að minnsta kosti 40% minni en hún var árið 2015. Nú þegar hefur losun gróðurhúsalofttegunda dregist saman um 27% og úrgangsmagn um 8%. Þessi góði árangur hefði aldrei náðst nema fyrir elju og áhuga starfsfólksins okkar,“ sagði Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, við þetta tækifæri.",
"innerBlocks": []
}