
Hér eru nemendur annars bekkjar skólans ásamt stuðningsfulltrúa með rusl sem þau tíndu úr Höskuldaránni fyrr í haust. Ljósm. úr safni.
Átthagafræðin í Grunnskóla Snæfellsbæjar tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær var tilkynnt að kennsla í átthagafræði við Grunnskóla Snæfellsbæjar er tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi þróunarverkefna í skólum. Fyrir verðlaununum standa Samtök áhugafólks um skólaþróun. Eins og fjallað hefur verið um í Skessuhorni er átthagafræðin í Grunnskóla Snæfellsbæjar þróunarverkefni sem beinist að því að efla jákvæð og virk tengsl skóla og samfélags, þekkingu nemenda á heimabyggð sinni og auka fjölbreytni í námi. Í átthagafræði er unnið með fræðslu um grenndarsamfélagið þar sem lykilþættirnir eru náttúra, landafræði og saga bæjarins. Áhersla er lögð á vettvangsferðir, kynningar, viðtöl, miðlun, tjáningu, samvinnu, sköpun og upplifun. Þá fá nemendur tækifæri til að kynnast samfélagi nútímans og þeim möguleikum sem þar búa til framtíðar.\r\n\r\nÁtthagafræðin hefur verið viðfangsefni í skólastarfinu frá árinu 2009. Hugmyndin kviknaði þegar unnið var að skólastefnu Grunnskóla Snæfellsbæjar með aðkomu skólafólks og bæjarbúa. Í kjölfar þeirrar vinnu var áhugi meðal starfsfólks skólans að auka þekkingu nemenda á heimabyggð sinni og í framhaldi af því leit átthagafræðin dagsins ljós. „Þetta er mikill heiður og viðurkenning fyrir skólann og allt samfélagið í Snæfellsbæ þar sem átthagafræðin okkar teygir anga sína um allt samfélagið. Allt starfsfólk, núverandi og fyrrverandi ásamt öllu skólasamfélaginu á þennan heiður. Ég stoltur af því að vera hluta af þessu samfélagi,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri.\r\n\r\nÍslensku menntaverðlaunin verða afhent við athöfn á Bessastöðum 2. nóvember nk.",
"innerBlocks": []
}