
Guðni Th. Jóhannesson forseti er hér með grænfánann í hönd áður en fáninn var dreginn að húni á Akraseli við hátíðlega athöfn í byrjun þessa sumars. Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri er lengst til vinstri. Ljósm. vaks.
Leikskólinn Akrasel tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Leikskólinn Akrasel á Akranesi er tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Ein verðlaun eru veitt í þeim flokki til skóla eða annarrar menntastofnunar sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Alls voru fjórir skólar tilnefndir.\r\n\r\nAkrasel er tilnefndur fyrir markvissa, skapandi og faglega vinnu við umhverfismennt og öfluga þróunarvinnu en skólinn hefur frá stofnun 2008 haft umhverfismennt og sjálfbærni að leiðarljósi. Skólinn vinnur á virkan hátt eftir hugmyndafræði um flæði, umhverfismennt og heilsueflandi leikskóla.\r\n\r\nÍ tilnefningunni er m.a. eftirfarandi umsögn um skólann: „<em>Á liðnu tímabili vann Akrasel mörg og krefjandi verkefni tengt sjálfbærni, ormarnir margfrægu, moltugerð og erlend samstarfsverkefni. Leikskólinn Akrasel hefur fundið samlegðaráhrif milli menntaumbótaverkefna og hefur hann síðustu ár verið að tengja Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna við starfið og kynnt Barnasáttmálann fyrir elsta árgangi leikskólans.</em><em> Leikskólinn Akrasel flaggaði sínum fyrsta grænfána 2011. Árið 2022 tók skólinn á móti sjötta Grænfána Landverndar. Samhliða því hlaut skólinn einnig viðurkenningu sem UNESCO skóli, fyrstur leikskóla á Íslandi.</em><em> Grænfána vinnan og</em><em> umhverfismenntin er grunnurinn að öllu starfi leikskólans.“</em>",
"innerBlocks": []
}