Fréttir

true

Alexandrea Rán varði titilinn

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir keppti á Norðurlandamóti unglinga í bekkpressu sem haldið var í Svíþjóð um liðna helgi. Þar gerði hún sér lítið fyrir og varði Norðurlandameistaratitilinn frá síðasta ári og er því meistari í bekkpressu annað árið í röð. Alexandrea keppti í 63 kg flokki og lyfti 100 kílóum.Lesa meira

true

Gróðursettu í Yrkjuskógi norðan við Borg

Grunnskólinn í Borgarnesi hefur gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðsins allt frá árinu 1992, eða í þrjátíu ár. Fyrstu árin var gróðursett í skógræktargirðingu í landi Borgar og árið 2014 var þar gróðursett tíu þúsundasta tréð. Það kom að því að svæðið í landi Borgar var fullgróðursett. Haustið 2020 var fyrst gróðursett í nýtt svæði norðan…Lesa meira

true

Söfnun og sáning á birkifræi hefst í vikunni

Verkefnið Söfnun og sáning á birkifræi er árlegt samstarfsverkefni Landgræðslunnar og Skógræktarinnar sem hófst árið 2020. Fræsöfnun hefst með formlegum hætti á morgun, fimmtudaginn 22. september. „Mikið fræ er nú á birki víða um land og alls staðar er eitthvað hægt að finna. Mest er þó af fræi þetta árið á Norður-, Austur- og Suðausturlandi,“…Lesa meira

true

Margir áhugasamir um áform vindorkufyrirtækja

Síðastliðið mánudagskvöld var boðað til kynningarfundar í Hjálmakletti í Borgarnesi um stöðu fyrirtækja sem vilja reisa vindorkugarða á Vesturlandi. Fundurinn var sá fyrsti af þremur sem boðaðir höfðu verið, en annar fundurinn var í gærkvöldi á Akranesi og sá þriðji og síðasti verður í Dalabúð í Búðardal annað kvöld, fimmtudaginn 22. september. Það eru óformleg…Lesa meira

true

Hefja vinnu við hönnun á nýju parkethúsi og uppbyggingu fjölnota íþróttahúss

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag kom fram að byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi hefði aflað gagna til undirbúnings fyrir byggingu annars vegar parkethúss sem staðsetja eigi á núverandi íþróttasvæði og hins vegar uppbyggingu gervigrasaðstöðu, annað hvort á núverandi íþróttasvæði undir berum himni eða með fjölnota íþróttahúsi, t.d. á núverandi tjaldsvæði við Granastaði. „Fyrir liggur frumkostnaðarmat…Lesa meira

true

Örnefnanefnd mælir með þremur nöfnum

Sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar óskaði í byrjun júlí eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72 tillögur að nafni. Sveitarstjórn fór yfir tillögurnar og ákvað að…Lesa meira

true

Bjarki komst áfram á Evrópumótaröðinni

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson var sá eini af fimm íslenskum kylfingum sem tóku þátt í úrtökumótum fyrir DP Evrópumótaröðina í síðustu viku sem komst áfram á 2. stigið. Bjarki lék vel á mótinu sem fram fór í Austurríki og lék alls 72 holur á sjö höggum undir pari. Hann tryggði sér þátttökurétt á næsta móti sem…Lesa meira

true

Skýrsla um framvindu lífríkis í Andakílsá

Út er komin skýrsla með niðurstöðum rannsókna á lífríki Andakílsár frá því að aurflóð fór niður farveg árinnar í maí 2017. Aurflóðið varð þegar vatni úr inntakslóni Andakílsárvirkjunar var hleypt niður um botnlokur virkjunarinnar. Við það varð rof á botnseti lónsins og gríðarlegt magn af aur barst niður á fiskgenga hluta Andakílsár með alvarlegum afleiðingum…Lesa meira

true

Aukið samráð umsagnar- og eftirlitsaðila í Borgarbyggð

Föstudaginn 9. september síðastliðinn komu saman til fundar í Hjálmakletti í Borgarnesi fulltrúar frá Slökkviliði Borgarbyggðar, byggingafulltrúa, Lögreglustjórinn á Vesturlandi, Vinnueftirlit, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Vinnustaðaeftirlit Stéttarfélags Vesturlands. Um var að ræða umsagnar- og eftirlitsaðila í sveitarfélaginu, en til fundarins var boðað af Slökkviliði Borgarbyggðar. Fyrirmyndin að þessu samstarfi hagsmunaaðila er fengin frá Suðurlandi en þar…Lesa meira

true

Franskri þýðingu á Ólafs sögu helga fagnað

„Sunnan af Frakklandi“ – Málþing um konungasögur til heiðurs François-Xavier Dillmann, í tilefni af útkomu franskrar þýðingar hans á Ólafs sögu helga, verður haldið í Snorrastofu í Reykholti föstudaginn 23. september kl. 14. Þýðing Dillmanns á Ólafs sögu helga eftir Snorra Sturluson er annað bindið í heildarþýðingu hans á Heimskringlu. Henni fylgja ítarlegar fræðilegar skýringar…Lesa meira