François-Xavier Dillmann er gistifræðimaður í Reykholti um þessar mundir.

Franskri þýðingu á Ólafs sögu helga fagnað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Sunnan af Frakklandi“ – Málþing um konungasögur til heiðurs François-Xavier Dillmann, í tilefni af útkomu franskrar þýðingar hans á Ólafs sögu helga, verður haldið í Snorrastofu í Reykholti föstudaginn 23. september kl. 14.\r\n\r\nÞýðing Dillmanns á Ólafs sögu helga eftir Snorra Sturluson er annað bindið í heildarþýðingu hans á Heimskringlu. Henni fylgja ítarlegar fræðilegar skýringar sem eru jafnframt sjálfstætt framlag til rannsókna á verkinu. Bókin kom út hjá forlaginu Gallimard í París fyrr á þessu ári.\r\n\r\nErindi á málþinginu flytja Alessia Bauer, Ármann Jakobsson, Gunnar Harðarson, Jan Alexander van Nahl, Margaret Cormack og Óskar Guðmundsson. François-Xavier Dillmann, mun einnig taka þátt í málþinginu, en hann er gistifræðimaður í Reykholt um þessar mundir. Boðið verður upp á kaffi milli erinda og léttar veitingar að þingi loknu. Allir eru hjartanlega velkomnir!\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Franskri þýðingu á Ólafs sögu helga fagnað - Skessuhorn