{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar óskaði í byrjun júlí eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72 tillögur að nafni. Sveitarstjórn fór yfir tillögurnar og ákvað að óska eftir umsögn örnefnanefndar.\r\n\r\nAf þeim nöfnum sem örnefnanefnd fékk til umsagnar telur hún nöfnin Þórsnesþing, Stykkishólmsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur falla best að nafngiftahefð í landinu. Nefndin er einnig meðmælt því að kenna nýsameinað sveitarfélag við Helgafell en telur ekki fara vel á því að nota eftirliðinn -sveit. Nefndin leggst hins vegar gegn nöfnunum Stykkishólmsbær og Helgafellssveit, Stykkishólmur og Helgafellssveit, Breiðafjarðarbær og Breiðafjarðarbyggð.",
"innerBlocks": []
}