Frá Borgarnesi. Ljósm. mm.

Aukið samráð umsagnar- og eftirlitsaðila í Borgarbyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Föstudaginn 9. september síðastliðinn komu saman til fundar í Hjálmakletti í Borgarnesi fulltrúar frá Slökkviliði Borgarbyggðar, byggingafulltrúa, Lögreglustjórinn á Vesturlandi, Vinnueftirlit, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Vinnustaðaeftirlit Stéttarfélags Vesturlands. Um var að ræða umsagnar- og eftirlitsaðila í sveitarfélaginu, en til fundarins var boðað af Slökkviliði Borgarbyggðar. Fyrirmyndin að þessu samstarfi hagsmunaaðila er fengin frá Suðurlandi en þar hefur sams konar samstarf gefist vel.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá slökkviliðsstjóra kemur fram að fundarmenn voru sammála um að fara af fullum krafti í samstarf sín á milli og eru bundnar miklar vonir við að allt eftirlit og umsagnir þeirra verði skilvirkari og með þeim hætti að ofangreindir aðilar geti betur fylgst með öllum framgangi og afgreiðslu mála. Vonast er til að það fjölgi í hópnum jafnt og þétt, þ.e. að dýralæknar og Matvælastofnun (MAST) bætist við en það eru aðilar sem sinna velferð og aðbúnaði húsdýra.\r\n\r\nMarkmið fundarins var að koma á laggirnar gagnvirku samráði ofangreindra aðila og stofnana vegna eftirlits með byggingum og mannvirkjum þ.m.t. brunavörnum, aðbúnaði verkafólks, heilbrigðisstétta og hollustuháttum almennt og síðast en ekki síst almennum réttindum verkafólks, segir í tilkynningu slökkviliðsins.",
  "innerBlocks": []
}
Aukið samráð umsagnar- og eftirlitsaðila í Borgarbyggð - Skessuhorn