Grunnskólinn og fjær eru núverandi íþróttamannvirki í Borgarnesi. Ljósm. mm.

Hefja vinnu við hönnun á nýju parkethúsi og uppbyggingu fjölnota íþróttahúss

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag kom fram að byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi hefði aflað gagna til undirbúnings fyrir byggingu annars vegar parkethúss sem staðsetja eigi á núverandi íþróttasvæði og hins vegar uppbyggingu gervigrasaðstöðu, annað hvort á núverandi íþróttasvæði undir berum himni eða með fjölnota íþróttahúsi, t.d. á núverandi tjaldsvæði við Granastaði.\r\n\r\n„Fyrir liggur frumkostnaðarmat á þessum þremur valkostum, auk áætlaðs hönnunar- og framkvæmdatíma á umræddum valkostum. Er því tímabært að vísa málinu til byggðarráðs og sveitarstjórnar til ákvörðunar um mismunandi fjárfestingarkosti. Tillaga byggingarnefndar íþróttamannvirkja til byggðarráðs hvað varðar forgangsröðun uppbyggingar er að hefja vinnu við þarfagreiningu og hönnun á nýju parkethúsi. Samhliða þeirri vinnu verði hafin vinna við uppbyggingu fjölnota íþróttahúss, t.d. við Granastaði. Áætlaður hönnunartími nýs parkethúss verði a.m.k. 24 mánuðir, en áætlaður hönnunar- og framkvæmdatími við uppbyggingu fjölnota íþróttahúss er um 24 mánuðir. Byggingarnefnd hefur við ofangreindar tillögur ekki tekið mið af fjárfestingargetu sveitarfélagsins og vísar endanlegri ákvörðun um forgangsröðun fjárfestinga til byggðarráðs og sveitarstjórnar í tengslum við gerð fjárfestingaráætlunar til næstu ára,“ segir í fundargerðinni.",
  "innerBlocks": []
}
Hefja vinnu við hönnun á nýju parkethúsi og uppbyggingu fjölnota íþróttahúss - Skessuhorn