Fréttir

true

Skýrsla um framvindu lífríkis í Andakílsá

Út er komin skýrsla með niðurstöðum rannsókna á lífríki Andakílsár frá því að aurflóð fór niður farveg árinnar í maí 2017. Aurflóðið varð þegar vatni úr inntakslóni Andakílsárvirkjunar var hleypt niður um botnlokur virkjunarinnar. Við það varð rof á botnseti lónsins og gríðarlegt magn af aur barst niður á fiskgenga hluta Andakílsár með alvarlegum afleiðingum…Lesa meira

true

Aukið samráð umsagnar- og eftirlitsaðila í Borgarbyggð

Föstudaginn 9. september síðastliðinn komu saman til fundar í Hjálmakletti í Borgarnesi fulltrúar frá Slökkviliði Borgarbyggðar, byggingafulltrúa, Lögreglustjórinn á Vesturlandi, Vinnueftirlit, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Vinnustaðaeftirlit Stéttarfélags Vesturlands. Um var að ræða umsagnar- og eftirlitsaðila í sveitarfélaginu, en til fundarins var boðað af Slökkviliði Borgarbyggðar. Fyrirmyndin að þessu samstarfi hagsmunaaðila er fengin frá Suðurlandi en þar…Lesa meira

true

Franskri þýðingu á Ólafs sögu helga fagnað

„Sunnan af Frakklandi“ – Málþing um konungasögur til heiðurs François-Xavier Dillmann, í tilefni af útkomu franskrar þýðingar hans á Ólafs sögu helga, verður haldið í Snorrastofu í Reykholti föstudaginn 23. september kl. 14. Þýðing Dillmanns á Ólafs sögu helga eftir Snorra Sturluson er annað bindið í heildarþýðingu hans á Heimskringlu. Henni fylgja ítarlegar fræðilegar skýringar…Lesa meira

true

Húsmóðir óskast á Höfða

Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi, auglýsti í síðustu viku stöðu húsmóður lausa til umsóknar og hefur auglýsingin vakið nokkra athygli. Skessuhorn heyrði hljóðið í Kjartani Kjartanssyni framkvæmdastjóra Höfða og spurði hann aðeins út í auglýsinguna. Áður fyrr var húsmóðir notað yfir konur sem störfuðu heima og sáu um öll verk heimilisins. Er þetta ný…Lesa meira

true

Miklar annir hjá þyrlusveitum Gæslunnar

Fyrir og um síðustu helgi bárust Landhelgisgæslunni fjölmörg útköll til sjós og lands. Meðal annars voru a.m.k. tvö útköll á Vesturland. Föstudagurinn reyndist sérlega annasamur. Um morguninn var óskað eftir aðstoð sveitarinnar vegna veikinda um borð í fiskiskipi sem var statt 80 sjómílur norður af Grímsey. Vegna fjarlægðar frá landi voru tvær þyrlur sendar norður,…Lesa meira

true

Skagakonur með góðan sigur á Völsungi

Völsungur og ÍA mættust í gær í úrslitakeppni efri hluta 2. deildar kvenna í knattspyrnu og fór viðureignin fram á Húsavík. Fyrir leik átti Völsungur enn von um að komast upp í Lengjudeildina með sigri í leiknum en Skagakonur voru meira að spila upp á stoltið. Aðstoðarþjálfarinn Aldís Ylfa Heimisdóttir var við stjórnvölinn hjá ÍA…Lesa meira

true

Kári lauk tímabilinu á góðum nótum

Kári og Víðir áttust við á föstudaginn í síðustu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu á þessu tímabili og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Káramenn komu ákveðnir til leiks og komust strax yfir á níundu mínútu með marki Kolbeins Tuma Sveinssonar. Eftir rúman hálftíma leik var Kolbeinn Tumi aftur á ferðinni með sitt annað mark…Lesa meira

true

Víkingur Ó vann Hauka í síðasta leik tímabilsins

Víkingur Ólafsvík tók á móti Haukum úr Hafnarfirði á laugardaginn í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu og unnu heimamenn þægilegan sigur, 3-0. Mitchell Reece kom Víkingi yfir eftir tæplega hálftíma leik og þannig var staðan í hálfleik. Fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson bætti við öðru marki fyrir heimamenn eftir klukkutíma leik og fjórum mínútum síðar…Lesa meira

true

Flotgirðing utan um dýpkunarprammann

Björgunarskipið Björg er nú búið að draga út flotgirðingu í kringum dýpkunarprammann í Rifshöfn. Girðingunni er ætlað að koma í veg fyrir dreifingu olíu frá prammanum ef hún fer að leka. Á svæðinu eru hafnarstarfsmenn, björgunarsveitarfólk og slökkviliðsmenn. Pramminn er hægt og rólega að sökkva dýpra í höfnina og óttast menn að hann fari á…Lesa meira

true

Dýpkunarprammi að sökkva í Rifshöfn

Talsverður viðbúnaður er nú í Rifshöfn þar sem dýpkunarprammi sem notaður er til að moka efni upp úr höfninni um borð í skip, er við það að sökkva. Unnið hefur verið við dýpkun innsiglingarinnar í höfnina. Við verkið er notuð grafa sem hvílir á flothylkjum og virðist leki hafa komið að þeim. Slökkvilið Snæfellsbæjar er…Lesa meira