Fréttir

true

Matsferill kemur í stað samræmdra könnunarprófa

Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir í grunnskólum á þessu skólaári og ekki fram til ársins 2024 að minnsta kosti. Með lagabreytingu í sumar hefur skyldu um lagningu prófanna verið frestað á meðan unnið er áfram að þróun nýs samræmds námsmats sem nefnist Matsferill. Það kerfi mun leysa samræmdu prófin af hólmi. „Matsferill er nýtt…Lesa meira

true

Nesmelsrétt í Hvítársíðu var fyrsta rétt haustsins

Það viðraði vel fyrir bændur og búsmala þegar Síðufjallið var smalað á laugardaginn og féð rekið til réttar á Nesmel í Hvítársíðu. Þægileg gola og sextán stiga hiti gerði daginn fallegan í alla staði. Síðufjallið er einkum smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar um næstu helgi. Féð í…Lesa meira

true

Íbúum fjölgar á Vesturlandi

Íbúum á Vesturlandi hefur frá 1. desember síðastliðnum fjölgað um 307 sem jafngildir 0,6%. Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,9% sem er fjölgun um 1.426 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra…Lesa meira

true

Listamenn í útivinnu

Það viðraði vel í morgun fyrir listamennina á Akranesi sem nú skreyta veggi. Nafnarnir Bjarni Skúli Ketilsson og Bjarni Þór Bjarnason voru báðir á fullu við verk sín þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið um, eru langt komnir með þau. Sífellt voru bæjarbúar að gefa sig á tal við þá félaga og ekki alltaf sem verkin…Lesa meira

true

Kaffihúsið Valeria býður upp á kólumbískt kaffi

Þetta viðtal birtist fyrst í 34. tölublaði Skessuhorns sem kom út 24. ágúst á þessu ári. Viðtalið birtist nú á vefnum í heild sinni. Í júní opnaði í Grundarfirði nýtt kaffihús sem heitir Valeria. Eigendur þess eru hjónin Marta Magnúsdóttir og Jan Van Haas. Marta er uppalinn Grundfirðingur og vill hvergi annars staðar vera og…Lesa meira

true

„Dýraníð á aldrei að fá að viðgangast“

Umræða um slæman aðbúnað hrossa í hesthúsi í Borgarnesi hefur verið í hámæli síðan á miðvikudaginn í þessari viku, þegar Steinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi vakti máls á því á FB síðu sinni. Birti hún myndir af skinhoruðu tryppi í gerði við hesthús með orðunum: „Þessi vesalings skepna á sér engan málsvara. Eftirlit bregst og…Lesa meira

true

Málleysingjar eiga að geta treyst því að farið sé eftir ábendingum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lokaliður á dagskrá dýravelferðarmál í sveitarfélaginu. Þar segir orðrétt: „Eftirlit með dýravelferð er á hendi Matvælastofnunar (MAST). Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til að umhverfis- og landbúnaðarnefnd eigi samtal við MAST um framkvæmd eftirlitsheimsókna og eftirfylgni með ábendingum. Í Borgarbyggð er mikill fjöldi íbúa sem heldur húsdýr og landbúnaður er…Lesa meira

true

Hallbera og Íslandsmeistarar FH 1972 heiðraðar í dag

Fyrir leik Íslands gegn Belarús í undankeppni HM 2023 sem fram fer í dag á Laugardalsvelli klukkan 17.30 verður Hallbera Guðný Gísladóttir heiðruð fyrir framlag sitt til knattspyrnu. Hallbera Guðný Gísladóttir lagði skóna á hilluna eftir síðasta leik Íslands á EM á Englandi í sumar. Hún spilaði samtals 131 leik fyrir Íslands hönd og skoraði…Lesa meira

true

Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl

Háskóli Íslands, í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands, býður í haust upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu hér á landi. Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði“ og er hugsað fyrir þá sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í…Lesa meira

true

Bálhvasst í Staðarsveit

Vindhraði mældist ríflega 36 metrar á sekúndu í hviðum um kl. 10.30 í morgun við Hraunsmúla í Staðarsveit. Þar var Þröstur Albertsson tengiliður Skessuhorns á ferð í morgun og sá að Suzuki Jimny bíll tveggja ferðamanna hafði verið ekið út af veginum vegna hvassviðrisins. Tjald sem hafði verið á þaki bílsins lá öðru megin vegar…Lesa meira