Fréttir

true

Vetraropnun í Akranesvita og Guðlaugu

Í dag, fimmtudaginn 1. september, tekur vetraropnun gildi í Akranesvita þar sem jafnframt er upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi. Einnig breytist opnunartími baðlaugarinnar Guðlaugar við Langasand. Opið verður í vitanum á mánudögum kl. 10-14 og þriðjudaga til föstudaga frá klukkan 10 til 16. Lokað verður um helgar. Guðlaug verður opin fjóra daga í viku; miðvikudaga og…Lesa meira

true

Vannærð hross í hesthúsahverfi – voru fjarlægð úr húsinu í nótt

Í gær setti Steinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi færslu á Facebook þar sem hún vakti athygli á illri meðferð hrossa í hesthúsi í hverfinu við Vindás í Borgarnesi. Benti hún á að um vanfóðrun væri greinilega að ræða auk þess sem hrossin hefðu ekki verið í haga í sumar og væru að mestu leyti lokuð…Lesa meira

true

Haldið til veiða á nýju kvótaári

Í dag hófst nýtt kvótaár á Íslandsmiðum. Að þessu sinni hefjast veiðarnar í skugga minni þorskkvóta en á síðasta fiskveiðiári, en menn halda engu að síður til veiða. Þorskveiðikvótinn nú er tæp 209 þúsund tonn. Sjómenn í Ólafsvík voru í gær að undirbúa báta sína undir sjósókn. Þeirra á meðal voru Höskuldur Árnason og Lárus…Lesa meira

true

Uppfærður listi – Réttir á Vesturlandi í haust

Skessuhorn birti í blaðinu sem kom út 25. ágúst sl. lista Bændablaðsins yfir tímasetningar á réttum í haust. Skessuhorn leitaði einnig viðbótarupplýsinga þar sem eyður voru í lista Bændablaðsins og þá hafa bændur sent inn nokkrar leiðréttingar og er neðangreindur listi uppfærður í samræmi við þær leiðréttingar. Fjár- og stóðréttir á landinu verða nú í fyrsta…Lesa meira

true

Eldri borgarar í Grundarfirði leggja land undir fót

Í Grundarfirði er mjög virkt félagsstarf fyrir íbúa 60 ára og eldri og er sjaldan lognmolla í kringum þennan glaðlynda hóp. Heill hópur af félögum var við það að ganga um borð í hópferðabíl er ljósmyndari Skessuhorns leit við hjá þeim síðastliðinn fimmtudag. Þá var ferðinni heitið í Hreðavatnsskála þar sem boðið var upp á…Lesa meira

true

Úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar

Síðastliðinn sunnudag fór fram úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans frá Kirkjubóli. Sjóðurinn er tvíþættur en annars vegar eru veitt ljóðaverðlaun og hins vegar menningarverðlaun. Ljóðaverðlaunin hlaut að þessu sinni ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson úr Hafnarfirði sem gefið hefur út fjölda ljóðabóka en hann rakti þau áhrif sem…Lesa meira

true

Aldrei fleiri nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar

Í haust eru 172 nemendur skráðir í nám við Menntaskóla Borgarfjarðar og hafa aldrei verið fleiri þótt skólinn hafi einu sinni komist nálægt tölunni fyrir rúmum tíu árum. Síðan þá hefur nemendafjöldi verið á bilinu 116 til 155, en frá haustinu 2020 hefur hann stefnt markvisst upp á við. Að sögn Braga Þórs Svavarssonar skólameistara…Lesa meira

true

Sofið við Norðurljós í Melasveit

Fyrirtækið Panorama Glass Lodge ehf hefur fest kaup á um tuttugu hektara landi austarlega í landi Hafnar í Melasveit. Þar hyggst fyrirtækið reka gæða gistiþjónustu í nokkurs konar glerskálum. Fyrirtækið er til heimilis á Suðurlandi og hefur þegar reist nokkur slík hús í nágrenni Hellu. Landið sem hér um ræðir er í Melasveit í Borgarfirði,…Lesa meira

true

Erlendum nemendum fjölgar í Háskólagáttinni á Bifröst

Liðlega 1.200 nemendur hefja nám við Háskólann á Bifröst í haust og það er Viðskiptadeild sem er lang fjölmennasta háskóladeildin. Athyglisvert er að skráningum hjá Háskólagátt skólans fjölgaði um 80% og eru nú samtals 45 nemendur skráðir þar. Háskólagáttin undirbýr nemendur fyrir grunnnám á háskólastigi. Rekja má aukninguna að hluta til þess að hún er…Lesa meira

true

Formleg opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsi HVE á Akranesi

Fimmtudaginn 25. ágúst heimsótti Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í tilefni af formlegri opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsinu. Auk þess átti ráðherra fund með framkvæmdastjórn. Starfsmenn komu saman til að fagna opnun skurðstofunnar og þeim stóra áfanga sem náðst hefur á síðustu 15 mánuðum með langþráðum endurbótum á húsnæði og búnaði á…Lesa meira