Bjarni Guðmundsson, prófessor og rithöfundur, hlaut menningarverðlaun sjóðsins. Við þetta tilefni flutti hann eigið lag við Smiðjuljóð Guðmundar Böðvarssonar.

Úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn sunnudag fór fram úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans frá Kirkjubóli. Sjóðurinn er tvíþættur en annars vegar eru veitt ljóðaverðlaun og hins vegar menningarverðlaun. Ljóðaverðlaunin hlaut að þessu sinni ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson úr Hafnarfirði sem gefið hefur út fjölda ljóðabóka en hann rakti þau áhrif sem ljóð Guðmundar Böðvarssonar hafa haft á hann. Menningarverðlaunin hlaut Bjarni Guðmundsson frá Hvanneyri. Bjarni er prófessor og rithöfundur en hann hlaut þessa viðurkenningu fyrir yfirgripsmikið starf við að miðla og geyma þekkingu um búskaparhætti á Íslandi, nánast frá landnámi og fram á þennan dag, með fjölda rita og bóka. Við þetta tilefni flutti Bjarni lag úr eigin smiðju við Smiðjuljóð Guðmundar.",
  "innerBlocks": []
}