
Sundlaugin að Jaðarsbökkum á Akranesi opnar aftur á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst, en hún hefur verið lokuð síðustu daga vegna árlegs viðhalds og viðgerða. Í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að það sé einungis sundlaugin sem opni 24. ágúst, ennþá sé unnið að viðhaldi á pottum, vaðlaug og rennibrautarlaug.Lesa meira








