
Hundurinn Kleina Karen er ekki mjög stór en ekkert minni en hvalurinn. Ljósm. Jóhannes Geir Guðmundsson.
Hvalreki á stærð við hund
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jóhannes Geir Guðmundsson á Reykhólum fór í göngu á dögunum með heimilishundinn Kleinu Karen með í för. Í ferðinni rákust þau á hnísukálf sem var rekinn. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að annað slagið sjáist hvalir þar inni á fjörðum, lítil háhyrningavaða sást í Berufirðinum fyrir fáeinum árum og í vor í Þorskafirði. Að öllum líkindum eru þeir að elta æti.\r\n\r\nFlestir hvalirnir fara þegar þeir hafa lokið erindum en sumir eru ekki jafn heppnir. Fyrir nokkrum árum gekk ferðafólk fram á háhyrningskálf uppi í fjöru innarlega í Þorskafirði og hjálpuðu bræðurnir Brynjólfur og Ólafur Smárasynir honum á flot. Seinna um sumarið fannst svo samskonar kálfur rekinn utar í firðinum hjá Hlíð og mjög líklegt að það hafi verið sama dýrið.",
"innerBlocks": []
}