Fjögurra tunnu sorpkerfi til skoðunar hjá Borgarbyggð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur lagt til að stefnt skuli að innleiðingu fjögurra tunnu flokkunarkerfis við heimili í sveitarfélaginu 1. janúar 2023, sbr. lög um hringrásarhagkerfi. Fyrir lágu hugmyndir um kostnað frá Íslenska gámafélaginu vegna íláta og merkinga. Nefndin vísaði erindinu til byggðaráðs til umfjöllunar og afgreiðslu en mun einnig taka málið aftur til umfjöllunar á næsta fundi sínum. Verið er að horfa til þess að í tunnunum verði eftirfarandi: pappír og pappi, plast, lífrænn úrgangur og almennt sorp.\n\nEkki liggur fyrir nákvæm útfærsla á framkvæmdinni og skoða þarf sérstaklega hvernig leysa á málin í eldri hverfum þar sem pláss er takmarkað. Ennfremur er talsverð vinna eftir við gjaldskrármál svo sem vegna innleiðingar „Borgað-þegar-hent-er“ kerfis sem byggir á mengunarbótareglunni (Polluter pays principle), sem innleidd var í íslensk lög árið 2012. Það er sú meginregla að sá sem valdi mengun bæti umhverfistjón sem af henni hlýst og beri kostnað af því.\n\nFrumvarp til breytingar á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs hefur víða verið á borðum sveitarfélaga undanfarið og tekur gildi um næstu áramót. Frumvarpið á sér uppruna í EES reglum en þar er áhersla m.a. lögð á að skapa eigi skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Samkvæmt nefndu frumvarpi skal koma upp sérstakri söfnun á heimilisúrgangi án blöndunar við annan úrgang. Flokka skal og safna a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum; pappír, málmum, plasti, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum. Einnig er tekið fram að sérstök söfnun á pappír, plasti og lífúrgangi eigi að fara fram á sem aðgengilegastan hátt við íbúðarhús og hjá lögaðilum í þéttbýli.\n\nFréttin hefur verið uppfærð.",
"innerBlocks": []
}
Fjögurra tunnu sorpkerfi til skoðunar hjá Borgarbyggð - Skessuhorn