
Keppni í gangi. Ljósm. Sauðfjársetrið.
Fljótamaður nýr Íslandsmeistari í hrútaþukli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um helgina var Íslandsmótið í hrútadómum haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Nýr meistari var krýndur, en Strandamenn náðu ekki að landa sigri að þessu sinni. Sigurvegari í vana flokknum og þar með Íslandsmeistari í hrútaþukli varð Gunnar Steingrímsson Stóra-Holti í Fljótum. Í öðru sæti varð Marinó Helgi Sigurðsson á Hólmavík og er hann yngsti keppandi til að komast á pall í vana flokknum frá upphafi. Í þriðja sæti varð Þórður Halldórsson á Breiðabólstað, Fellsströnd í Dölum. Alls kepptu 35 í vana flokknum. Eyjólfur Yngvi Bjarnason ráðunautur var yfirdómari að þessu sinni.\r\n\r\nÍ flokki óvanra og hræddra hrútaþuklara (sem eru þeir sem ekki kunna að stiga hrútana eftir stigakerfinu sem vanir nota í keppninni). Í fyrsta sæti í þeim flokki varð Elín Þóra Stefánsdóttir í Bolungarvík og er það alls ekki í fyrsta skipti sem hún kemst á verðlaunapall. Í öðru sæti varð Katrín Jónasdóttir á Þúfnavöllum í Hörgárdal í Eyjafirði. Þriðja varð Bjarnheiður Fossdal á Melum í Árneshreppi og hún hefur einnig verið á verðlaunapalli áður. Alls voru 17 keppendur í flokki óvanra.\r\n\r\nBlíðskaparveður var og fjölmenni á staðnum, talið er að rúmlega 300 gestir hafi litið við yfir daginn. Glæsilegt kaffihlaðborð var á boðstólum og ókeypis á sýningar setursins. Sauðfjársetrið þakkar öllum kærlega fyrir komuna.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"55645,55646\"]",
"innerBlocks": []
}