Guðmundur og Ingibjörg á Kirkjubóli með elstu barnabörnin. Myndin er frá árinu 1959.

Úthlutað úr minningarsjóði Kirkjubólshjóna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sunnudaginn 28. ágúst nk. klukkan 15 verður athöfn í Reykholtskirkju þar sem stjórn Minningarsjóðs Ingibjargar Sigurðardóttur og Guðmundar Böðvarssonar frá Kirkjubóli í Hvítársíðu mun afhenda verðlaun. „Þessi litla en mikilvæga athöfn er öllum opin og væri sérstaklega ánægjulegt að sjá sem flest, einkum þau sem eru í þeim félagasamtökum sem standa að sjóðnum,“ segir Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum, sem situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd Sambands borgfirskra kvenna. Aðrir í stjórn eru Ingibjörg Sigurðardóttir fyrir hönd erfingja þeirra Ingibjargar og Guðmundar, Jón Gíslason fyrir hönd Búnaðarsamtaka Vesturlands, Steinunn Ásta Guðmudsdóttir yrir hönd Ungmennasambands Borgarfjarðar og Steinunn Jóhannesdóttir f.h. Rithöfundasambands Íslands.\r\n\r\n<strong>Uss, pabbi ykkar er að skrifa</strong>\r\n\r\nEn grípum hér niður í kynningu á stjórn Minningarsjóðs Kirkjubólshjóna sem Ingibjörg á Fróðastöðum tók saman:\r\n\r\n„Hlutverk minningarsjóðsins er að leggja lið og vekja athygli á því sem vel er gert í menningarmálum í héraðinu og ljóðlist á Íslandi. Einnig er tilgangur sjóðsins að halda á lofti minningu þeirra hjóna Ingibjargar og Guðmundar. Guðmundur var bóndi á Kirkjubóli en hann var einnig mikilvirkt ljóðskáld sem náði að tileinka sér margt af því sem var að gerast í ljóðlist á Íslandi um miðja 20. öldina, ásamt því að halda í heiðri ljóðaarfi þjóðarinnar. En hann á ekki allan heiðurinn af þeim verkum sem eftir hann liggja. Ingibjörg kona hans, eða Inga á Kirkjubóli eins og sveitungarnir kölluðu hana, á sinn stóra þátt í verkum hans. Hún veitti honum innblástur eins og sum ljóða hans bera glöggt með sér og svo gaf hún honum rými til þess að sinna ljóðagyðjunni með því að taka ríflega sinn skerf af bústörfum og heimilishaldi. Sagði oft við börnin þeirra þrjú: „Uss pabbi ykkar er að skrifa.“\r\n\r\n<strong>Um sjóðinn og ávöxtun hans</strong>\r\n\r\nMinningarsjóðurinn var stofnaður 1. september 1974 en fyrr á árinu hafði Guðmundur látist en Ingibjörg lést árið 1971. Að sjóðnum stóðu: Búnaðarsamband Borgarfjarðar, (Búnaðarsamtök Vesturlands) Rithöfundasamband Íslands, Samband borgfirskra kvenna og Ungmennasamband Borgarfjarðar. Síðar bættust erfingjar þeirra hjóna formlega við sem aðilar að sjóðnum. Fyrstu ellefu árin rak sjóðurinn bústað fyrir rithöfunda og annað listafólk í íbúðarhúsi þeirra hjóna á Kirkjubóli. Fyrstu árin var aðsókn að húsinu góð en þegar fram liðu stundir dró úr henni. Því var sú ákvörðun tekin árið 1986 að selja húsið og var andvirðið látið ávaxtast en starfsemi sjóðsins lá í raun niðri til ársins 1991. Þá var tekin ákvörðun um að ráða Silju Aðalsteinsdóttur til að rita ævisögu Guðmundar og bókin Skáldið sem sólin kyssti leit dagsins ljós. Jafnframt var tekin sú ákvörðun að veita ljóðaverðlaun og menningarverðlaun úr sjóðnum og skyldu tekjur sjóðsins standa undir því. Og þannig er starfsemin nú. Helstu tekjur sjóðsins eru greiðslur fyrir flutning á verkum Guðmundar sem erfingjar hans hafa látið renna til sjóðsins og vextir af höfuðstólnum, sem reyndar hafa verið í sögulegu lágmarki síðustu ár. Sökum þess hefur ekki verið veitt úr sjóðnum síðan sumarið 2017. Verðlaunafé hefur verið ein milljón króna sem skiptist á milli Borgfirsku menningarverðlaunanna og Ljóðaverðlaunanna.“",
  "innerBlocks": []
}
Úthlutað úr minningarsjóði Kirkjubólshjóna - Skessuhorn