Fréttir

true

Úthlutað úr minningarsjóði Kirkjubólshjóna

Sunnudaginn 28. ágúst nk. klukkan 15 verður athöfn í Reykholtskirkju þar sem stjórn Minningarsjóðs Ingibjargar Sigurðardóttur og Guðmundar Böðvarssonar frá Kirkjubóli í Hvítársíðu mun afhenda verðlaun. „Þessi litla en mikilvæga athöfn er öllum opin og væri sérstaklega ánægjulegt að sjá sem flest, einkum þau sem eru í þeim félagasamtökum sem standa að sjóðnum,“ segir Ingibjörg…Lesa meira

true

Stórtap í síðasta leik Reynis í sumar

Hvíti riddarinn og Reynir Hellissandi mættust í lokaumferð A riðils í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Mosfellsbæ. Hvíti riddarinn sem hefur verið í efsta sæti riðilsins í allt sumar voru fjórum mörkum yfir í hálfleik og bættu við þremur í síðari hálfleik, lokastaðan stórsigur Mosfellinga, 7-0. Reynir lauk…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur í síðasta leik sumarsins

Hörður Í. og Skallagrímur áttust við í lokaumferðinni í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Skeiðisvellinum í Bolungarvík. Viktor Már Jónasson kom Skallagrími yfir eftir átta mínútna leik og Viktor Ingi Jakobsson bætti við öðru marki úr víti á 17. mínútu fyrir gestina. Gabríel Heiðberg Kristjánsson fékk sitt…Lesa meira

true

Hvalreki á stærð við hund

Jóhannes Geir Guðmundsson á Reykhólum fór í göngu á dögunum með heimilishundinn Kleinu Karen með í för. Í ferðinni rákust þau á hnísukálf sem var rekinn. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að annað slagið sjáist hvalir þar inni á fjörðum, lítil háhyrningavaða sást í Berufirðinum fyrir fáeinum árum og í vor í Þorskafirði. Að öllum…Lesa meira

true

Leynir í þriðja sæti í golfi 50 ára og eldri

Leyniskonur náðu frábærum árangri á Íslandsmóti golfklúbba 50 ára og eldri en mótið fór fram á Hólmsvelli í Leirunni 18.-20. ágúst. Leyniskonur gerðu sér lítið fyrir og náðu þriðja sætinu eftir sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Árangurinn er sérstaklega ánægjulegur þar sem liðið sigraði í 2. deild fyrir ári síðan og kepptu þær því…Lesa meira

true

Fljótamaður nýr Íslandsmeistari í hrútaþukli

Um helgina var Íslandsmótið í hrútadómum haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Nýr meistari var krýndur, en Strandamenn náðu ekki að landa sigri að þessu sinni. Sigurvegari í vana flokknum og þar með Íslandsmeistari í hrútaþukli varð Gunnar Steingrímsson Stóra-Holti í Fljótum. Í öðru sæti varð Marinó Helgi Sigurðsson á Hólmavík og er hann…Lesa meira

true

Skagakonur unnu sigur á KÁ

ÍA og KÁ mættust á laugardaginn í síðustu umferð 2. deildar kvenna í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Skagakonur byrjuðu af krafti í leiknum því eftir rúmlega fimmtán mínútna leik var staðan orðin 3-0 fyrir ÍA. Sunna Rún Sigurðardóttir skoraði fyrstu tvö mörkin áður en fyrirliðinn Bryndís Rún Þórólfsdóttir skoraði þriðja markið og…Lesa meira

true

Fuglaflensusmit viðvarandi

Matvælastofnun varar enn við hættu á fuglaflensusmiti frá villtum fuglum yfir í alifugla. „Stofnunin lítur svo á að smit með skæðum fuglaflensuveirum sé viðloðandi í villtum fuglum víða á landinu. Þó hafa færri veikir eða dauðir villtir fuglar verið tilkynntir til Matvælastofnunar í júlí og það sem af er ágúst, en mánuðina á undan,” segir…Lesa meira

true

Jafnt hjá Magna og Víkingi Ó í markaleik

Magni og Víkingur Ólafsvík mættust í 18. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og fór viðureignin fram fyrir norðan á Grenivíkurvelli. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir gestina því á fyrstu mínútunni náðu heimamenn forystunni með marki Guðna Sigþórssonar en Andri Þór Sólbergsson jafnaði metin á 19. mínútu með sínu tíunda marki í deildinni…Lesa meira

true

Vinsælir fuglar óska eftir kosningastjórum

Að afstöðnu forvali fyrir Fugla ársins 2022 komust sjö fuglar áfram og óska nú eftir byr undir báða vængi í kosningabaráttu sinni. Í tilkynningu frá Fuglavernd kemur fram að þetta eru fuglarnir: Auðnutittlingur Himbrimi – kominn með kosningastjóra Hrafn Hrossagaukur Jaðrakan Kría Maríuerla „Ef þú hefur áhuga á að taka að þér að vera kosningastjóri…Lesa meira