
Með breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögum um rafrænar skuldaviðurkenningar verður hægt að gefa út, undirrita og þinglýsa lánaskjölum vegna fasteignakaupa og bifreiðakaupa alfarið á rafrænu formi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur lagt fram frumvarp þess efnis í Samráðsgátt stjórnvalda en þjóðhagslegur ávinningur af rafrænum þinglýsingum er að lágmarki metinn 1,2 – 1,7 milljarðar króna.…Lesa meira








