
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra heimsótti Akranes í gærmorgun og tók Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á móti henni ásamt bæjarfulltrúunum Valgarði Lyngdal Jónssyni, Líf Lárusdóttur og Ragnari Baldvin Sæmundssyni. Forsætisráðherra ræddi við þau um hverjar séu helstu áherslurnar í bæjarmálum á Akranesi og fékk innsýn í hvaða málefni brenna mest á sveitarfélaginu.Lesa meira








