Á Bifröst er annar tveggja háskólanna á Vesturlandi. Ljósm. úr safni

Aldursfriðunarákvæði gamalla húsa endurskoðað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Óheimilt er að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Samkvæmt lögum sem tóku gildi árið 2013 miðar friðun við hundrað ára aldur. Á samráðsgátt stjórnvalda má nú sjá tillögu um að endurskoða það ákvæði og miða friðun þess í stað við tiltekið ártal, sem enn á eftir að ákveða hvert verður.\r\n\r\nAllar byggingaleyfisskyldar framkvæmdir við hús og mannvirki sem náð hafa hundrað ára aldri þurfa leyfi Minjastofnunar sem einnig veitir styrki til viðgerða. Þetta miðast nú við árið 1922 eins og gefur að skilja. Mikið var hins vegar byggt á Íslandi á árunum sem þá fóru í hönd. Er því stutt í aldursfriðun mikils fjölda bygginga og ekki gefið að þær hafi allar sérstakt verndargildi.\r\n\r\nFjölmörg hús og mannvirki á Vesturlandi hafa gegnum árin notið styrkja frá Minjastofnun að undangenginni umsögn Húsafriðunarnefndar. Má sem dæmi nefna að í ár voru veittir styrkir til endurbóta á nokkrum kirkjum, svo sem Fitjakirkju í Skorradal og Rauðamelskirkju í Eyja- og Miklaholtshreppi. Einnig voru veittir myndarlegir styrkir til gamla skólahússins á Bifröst og Norska hússins í Stykkishólmi.\r\n\r\nNefna má að friðunarákvæðið gildir einnig um innviði svo sem gaddavírsgirðingar í sveitum landsins og aukinheldur þess vegna er þörf á að yfirfara gildandi lög um menningarminjar. Umsagnarfrestur um lagabreytinguna er til 22. ágúst nk. og verða umsagnir birtar jafnóðum og þær berast í samráðsgátt stjórnvalda.",
  "innerBlocks": []
}
Aldursfriðunarákvæði gamalla húsa endurskoðað - Skessuhorn