Fréttir

true

Fjölbreytileikanum vel fagnað í Snæfellsbæ

Hinseginhátíð Vesturlands fór fram um síðustu helgi í Snæfellsbæ í flottu veðri. Var þátttaka mjög góð að sögn skipuleggjanda og voru hátt í 1000 manns sem saman voru komnir. „Við bjuggumst ekki við svona mörgum og það komu margfalt fleiri en við áttum von á.“ sagði Alexander Aron Guðjónsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í samtali…Lesa meira

true

Fékk sinn fyrsta flugulax í Þverá í Borgarfirði

Marteinn Már Jakobsson fór á dögunum að veiða í Þverá í Borgarfirði ásamt félaga sínum Pétri Emil Júlíusi Gunnlaugssyni. Í Þverá hafa 755 laxar komið á land í sumar en Norðurá er rétt fyrir neðan Þverá. Marteinn Már segir í samtali við Skessuhorn að fyrir ferðina hefðu þeir félagar farið saman þrisvar í laxveiði og…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur á Kríu

Skallagrímur tók á móti liði Kríu á Skallagrímsvelli í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og vann að lokum sigur, 2-0. Viktor Ingi Jakobsson sem var að leika sinn þriðja leik í sumar fyrir Skallagrím gerði gæfumuninn í leiknum. Sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði hann fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn…Lesa meira

true

Skagamenn í frjálsu falli eftir tap gegn Fram

ÍA og Fram mættust í gærkvöldi í 14. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu  á Akranesvelli og varð ÍA að sætta sig við sitt fjórða tap í röð í deildinni, lokatölur 0-4 fyrir gestina. Framarar komust yfir á 19. mínútu með marki Magnúsar Þórðarsonar og tveimur mínútum síðar voru þeir komnir í tveggja marka forystu…Lesa meira

true

Hinseginhátíð Vesturlands á Akranesi 2023

Síðastliðna helgi fór Hinseginhátíð Vesturlands fram í Ólafsvík með tilheyrandi skrúðgöngu, skemmtiatriðum og stemmningu. Á hátíðinni var tilkynnt að næsta staðsetning hátíðarinnar yrði á Akranesi að ári. Hátíðin fór fyrst fram á síðasta ári, 2021, þá í Borgarnesi.Lesa meira

true

Ráðherra boðar frumvarp um skiptingu aflakvóta

Fyrir helgi lauk strandveiðum þegar kvótinn kláraðist langt umfram heimilaðan veiðitíma. Var þetta fyrr en nokkru sinni áður þó leyfilegur afli hafi einnig verið hærri en nokkru sinni fyrr. Gerði þetta að verkum að mismikill afli kom í hlut hvers svæðis fyrir sig. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir í pistli sínum sem hún birti í Morgunblaðinu…Lesa meira

true

Landhelgisgæslan sinnti útkalli við Glym

Rétt fyrir klukkan fjögur í gær var leitast eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við útkall við fossinn Glym í Hvalfirði. Kona hafði ökklabrotnað á óheppilegum stað þar sem aðgengi var erfitt og illa gekk að bera konuna niður. Konan var sótt með þyrlu og flutt á sjúkrahús til viðeigandi aðhlynningar.Lesa meira

true

Skagakonum skellt af Gróttu

Grótta og ÍA mættust á föstudaginn í 2. deild kvenna í knattspyrnu og var leikurinn á Seltjarnarnesi. Fyrir leik munaði fimm stigum á liðunum, Grótta var í öðru sæti með 17 stig og ÍA með tólf í því fimmta og því afar mikilvægur leikur í toppbaráttunni. Leikurinn byrjaði vel fyrir Skagakonur því á 16. mínútu…Lesa meira

true

Víkingur Ó tapaði fyrir Völsungi

Völsungur og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á PCC vellinum á Húsavík. Leikurinn byrjaði ekki gæfulega fyrir gestina því á 19. mínútu varð Emmanuel Eli Keke fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Heimamenn létu síðan kné fylgja kviði fimm mínútum fyrir hálfleikshléið þegar Áki Sölvason…Lesa meira

true

Borgfirðingar fjölmenntu á púttmót

Open-púttmótið fór fram á Hvammstanga síðastliðinn föstudag. Þátttaka var dræm en um 20 keppendur mættu til leiks. Voru 16 þátttakendur frá Borgarnesi, einn frá Akranesi og þrír frá Hvammstanga. Í kvennaflokki sigraði Guðrún Birna Haraldsdóttir frá Borgarnesi og í karlaflokki sigraði Páll Sigurðsson frá Hvammstanga. Elvar Ísak Jessen sigraði drengjaflokkinn en hann er frá Akranesi.…Lesa meira