
Þrír mánuðir eru nú liðnir síðan Skagamenn fögnuðu síðast sigri í Bestu deildinni. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Skagamenn í frjálsu falli eftir tap gegn Fram
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Fram mættust í gærkvöldi í 14. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Akranesvelli og varð ÍA að sætta sig við sitt fjórða tap í röð í deildinni, lokatölur 0-4 fyrir gestina. Framarar komust yfir á 19. mínútu með marki Magnúsar Þórðarsonar og tveimur mínútum síðar voru þeir komnir í tveggja marka forystu þegar Már Ægisson lét vaða í átt að marki sem leit út fyrir að eiga að vera fyrirgjöf en boltinn fór framhjá öllum í teignum, tók eitt skopp og endaði í markinu. Það sem eftir lifði hálfleiksins var hálfgerð einstefna af hálfu Fram og átti liðið skot og skalla sem hafnaði í þverslá Skagamanna, staðan 0-2 í hálfleik.\r\n\r\nSeinni hálfleikurinn var nýhafinn þegar bakvörðurinn Alex Freyr Elísson lék á tvo varnarmenn ÍA, potaði boltanum framhjá þeim þriðja og í markið. Á 63. mínútu skoraði Guðmundur Magnússon fjórða mark Fram með skalla eftir fyrirgjöf og var það hans ellefta mark í Bestu deildinni í sumar. Fljótlega eftir markið gerðu Skagamenn þrefalda skiptingu og gáfu ungum leikmönnum tækifæri. Fram einbeitti sér að því að halda boltanum innan liðsins frekar en að sækja og Skagamenn gerðu sig líklega en áttu engin hættuleg færi. Verðskuldaður fjögurra marka sigur gestanna köld staðreynd, lokatölur 0-4 fyrir Fram.\r\n\r\nSkagamenn eru í neðsta sæti Bestu deildarinnar með aðeins átta stig eftir 14 leiki en fyrir ofan þá er Leiknir R. með tíu stig og FH og ÍBV með ellefu stig. Sem fyrr er Breiðablik í efsta sæti með 35 stig, Víkingur í öðru sæti með 28 stig og KA með 27 stig í þriðja sæti. Næstu þrír leikir Skagamanna eru gegn liðum í efri hluta deildarinnar og því ljóst að margt þarf að breytast til að Skagamenn nái sínum fyrsta sigri síðan í apríl. Næsti leikur ÍA er gegn toppliði Blika þriðjudaginn 2. ágúst á Kópavogsvelli og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}