Skallagrímur með sigur á Kríu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur tók á móti liði Kríu á Skallagrímsvelli í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og vann að lokum sigur, 2-0. Viktor Ingi Jakobsson sem var að leika sinn þriðja leik í sumar fyrir Skallagrím gerði gæfumuninn í leiknum. Sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði hann fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn og þegar fjórar mínútur voru komnar í uppbótartíma í seinni hálfleik var hann aftur á ferðinni með sitt annað mark, lokastaðan í Borgarnesi 2-0 fyrir Skallagrími.\r\n\r\nSkallagrímur er í harðri baráttu við lið Hvíta riddarans og Árbæ um hvaða tvö lið fara úr riðlinum í úrslitakeppni 4. deildar sem hefst í lok ágúst. Næsti leikur Skallagríms er gegn Hvíta riddaranum og sker sá leikur líklega úr um hvort Skallagrímur eigi möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Leikurinn verður laugardaginn 6. ágúst í Mosfellsbæ og hefst klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur með sigur á Kríu - Skessuhorn