
Fjölmenni tók þátt í göngunni. Ljósm. af
Fjölbreytileikanum vel fagnað í Snæfellsbæ
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hinseginhátíð Vesturlands fór fram um síðustu helgi í Snæfellsbæ í flottu veðri. Var þátttaka mjög góð að sögn skipuleggjanda og voru hátt í 1000 manns sem saman voru komnir. „Við bjuggumst ekki við svona mörgum og það komu margfalt fleiri en við áttum von á.“ sagði Alexander Aron Guðjónsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í samtali við Skessuhorn og bætti við: „Við vorum með sjö vagna og það voru um þúsund manns sem voru viðstaddir gönguna. Ég leiddi gönguna og þegar ég var kominn að leiðarlokum þá gat ég ennþá séð gönguna fara upp regnbogagötuna. Þannig að þetta var mjög löng og flott ganga sem var gengin hér í Ólafsvík.“ Gengið var frá Ólafsbraut, upp Kirkjutún þar sem regnbogagatan hafði verið máluð í tilefni hátíðarinnar og í Sjómannagarðinn þar sem skemmtidagskrá tók við að göngu lokinni.",
"innerBlocks": []
}