Fékk sinn fyrsta flugulax í Þverá í Borgarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Marteinn Már Jakobsson fór á dögunum að veiða í Þverá í Borgarfirði ásamt félaga sínum Pétri Emil Júlíusi Gunnlaugssyni. Í Þverá hafa 755 laxar komið á land í sumar en Norðurá er rétt fyrir neðan Þverá.\r\n\r\nMarteinn Már segir í samtali við Skessuhorn að fyrir ferðina hefðu þeir félagar farið saman þrisvar í laxveiði og hafði Marteinn ekki enn fengið fyrsta flugulaxinn sinn. „Það var mjög mikið líf og mjög mikið af laxi að ganga upp ánna og við sáum mikið af fiski á breiðunni hjá Lundahyl sem straujaði upp. Ég fékk svakalega töku í Lundahyl og hélt þá að ég væri að fara að landa fyrsta flugulaxinum en raunin var nýgenginn 62 cm sjóbirtingur, mjög vel haldinn.\r\n\r\nVið vorum að setja í marga fiska og misstum töluvert enda voru aðstæður þannig að það var logn og sól og þurftum við því að treysta á micro flugur í stærðum #18 sem og hitch. Það gerðist síðan loksins að ég fór í strengina og setti rauðan francis í stærð #14 undir og í fyrsta kasti tók fiskurinn og landaði ég þessum fallega nýgengna 65 cm hæng.“\r\n\r\nMarteinn Már segir að þetta hefði haft ótrúlegt tilfinningagildi fyrir hann að hafa fengið sinn fyrsta flugulax í þessari á því að þarna hefðu foreldrar hans veitt ásamt ömmu hans og afa mikið fyrir um 30 árum. „Ég hafði komið hérna einu sinni áður árið 2001 þegar ég var átta ára og fékk ég þá að kasta með flotholti og maðk og veiða sjóbirting. Ég hugsaði mikið til afa míns Palla í þessari ferð þar sem hann lést snemma á þessu ári. Hann hefði verið ánægður að fá að heyra að ég hafi landað mínum fyrsta flugulax í Þverá í Borgarfirði,, segir Marteinn Már að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Fékk sinn fyrsta flugulax í Þverá í Borgarfirði - Skessuhorn