
Rétt fyrir klukkan fjögur í gær var leitast eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við útkall við fossinn Glym í Hvalfirði. Kona hafði ökklabrotnað á óheppilegum stað þar sem aðgengi var erfitt og illa gekk að bera konuna niður. Konan var sótt með þyrlu og flutt á sjúkrahús til viðeigandi aðhlynningar.Lesa meira








