
Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin á morgun, laugardaginn 16. júlí. Hátíðin er í senn fjölskylduhátíð, skemmtun og átthagamót þeirra sem unna svæðinu. Megindagskráin verður frá kl. 13 til 17. Meðal skemmtikrafta verða Lalli töframaður, Bjartmar Guðlaugsson, Jóhannes Kristjánsson og fleiri. Áhugaverð gönguferð með leiðsögn verður farin áður en formleg dagskrá hefst (um kl. 11).…Lesa meira








