{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 176 þúsund í nýliðnum júnímánuði, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fimmta fjölmennasta júnímánuðinn frá því mælingar hófust. Brottfarir í júní voru um 75% af því sem þær voru í júnímánuði 2018 þegar mest var og um 90% af því sem þær voru í júnímánuði 2019. Tæplega þriðjungur brottfara var tilkominn vegna Bandaríkjamanna. Brottfarir Þjóðverja voru í öðru sæti en þeir hafa lengst af verið næstfjölmennasta þjóðernið í júnímánuði. Brottfarir Íslendinga mældust um 66 þúsund í mánuðinum og hafa þær einungis mælst tvisvar áður svo margar í júní.",
"innerBlocks": []
}
Fjöldi ferðamanna að nálgast það sem mest var - Skessuhorn