Fréttir

true

Björn Bjarki er nýr sveitarstjóri Dalabyggðar

Björn Bjarki Þorsteinsson verður næsti sveitarstjóri í Dalabyggð, en skrifað var undir samning við hann fyrr í dag. Bjarki hefur starfað sem framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalarheimilis í Borgarnesi, síðastliðin 15 ár. Hann hefur m.a. setið í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu síðastliðin 10 ár, lengst af sem varaformaður og síðar formaður þar til í…Lesa meira

true

Vestlenskt hestafólk uppskar vel á Landsmóti á Hellu

Í liðinni viku var Landsmót hestamanna haldið á Hellu á Rangárvöllum. Veðrir spilaði stórt hlutverk á mótinu, var fremur fúlt flesta mótsdagana. Á fimmtudeginum þurfti að fresta dagskrá og fella dagskrárliði út, meðal annars hópreiðina. Á mótinu kom fram rjóminn af íslenskum gæðingum og knöpum en einkunnir voru afburða háar og oft mjótt á munum…Lesa meira

true

Björn Viktor og Vala María klúbbmeistarar Leynis

Meistaramót golfklúbbsins Leynis á Akranesi var haldið dagana 6. til 9. júlí og aldrei fyrr hefur mótið verið svo fjölmennt eins og í ár. Alls tóku um 170 kylfingar þátt í mótinu en keppt var í tólf flokkum. Vegna veðurspár og aðstæðna á Garðavelli var felld niður umferð dagsins á fimmtudeginum og þá var hávaðarok…Lesa meira

true

Tuttugu rafskútur mættar í Borgarnes

Tveir tugir af rafskútum bættust í umferðina í Borgarnesi í hádeginu í dag þegar fyrirtækið Hopp Akranes hóf þar formlega starfsemi. Eins og sagt hefur verið frá hér í Skessuhorni hefur rafskútum fjölgað til muna á Akranesi, en þangað komu þær í fyrsta sinn fyrir rúmu ári og voru þá fjörutíu talsins. Skúturnar eru á…Lesa meira

true

Regína ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ

Regína Ásvaldsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Undanfarin fimm ár hefur Regína verið sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þá hefur hún einnig starfað sem framkvæmdastjóri Festu, félags um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, verið skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar. Þrjátíu sóttu um bæjarstjórastólinn í Mosfellsbæ og vildu taka við…Lesa meira

true

Bílvelta á móts við Hamra í Grundarfirði

Á ellefta tímanum í morgun varð bílvelta á móts við bæinn Hamra í Grundarfirði. Tveir voru í bílnum og var annar fluttur undir læknishendur. Mikill viðbúnaður sjúkraflutninga, lögreglu og tækjabíls frá slökkviliðinu var vegna slyssins, sem virðist þó hafa farið betur en á horfðist í fyrstu, að sögn lögreglu.Lesa meira

true

Einar Margeir stóð sig vel á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi

Hinn 17 ára Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi ÍA synti frábærlega á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu í liðinni viku. 494 unglingar frá 42 löndum tóku þátt. Í 100 metra bringusundi setti hann Íslandsmet í unglingaflokki þegar hann bætti sinn besta tíma um rúma sekúndu og synti á tímanum 1.03.45 en…Lesa meira

true

Ný tímabundin hjáleið vegna framkvæmda í Borgarnesi

Nú standa yfir framkvæmdir á Borgarbraut á milli Böðvarsgötu og Egilsgötu í Borgarnesi. Verið er að endurnýja fráveitulagnir, hitaveitu- og vatnslagnir ásamt því sem yfirborð götu og gangstíga verður endurnýjað. Verkið er á vegum Veitna, Vegagerðarinnar, Rarik og Borgarbyggðar. Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að útbúin verði tímabundin hjáleið yfir Kveldúlfsvöll og hluta Berugötu á meðan…Lesa meira

true

5G samband komið í Ólafsvík

Nú hefur Ólafsvík bæst í hóp þeirra bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G neti og mörgum bæjarbúum stendur því til boða áður óþekktur nethraði. Nú hefur Nova sett upp 65 senda í öllum landshlutum og er áætlað að þeir verði orðnir 200 árið 2024. „Fyrir bæjarbúa í Ólafsvík þýðir innleiðingin mun meiri afköst en áður…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir á brúnni yfir Laxá í Kjós

„Vegna skemmda á brú er búið að setja 10 tonna ásþungatakmörkun og 40 tonna takmörkun á heildarþyngd ökutækja á brúna yfir Laxá í Kjós, á Hvalfjarðarvegi. Undanþáguflutningar yfir þeim mörkum fer Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og fyrir Hvalfjörð. Vagnlestir og einstök ökutæki 40 tonn og yfir sem og ökutæki sem ekki uppfylla 10 tonna ásþunga verða að…Lesa meira