Vel var tekið á móti nýja sveitarstjóranum, en á myndinni eru frá vistri: Garðar Freyr Vilhjálmsson, Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Einar Jón Geirsson, Guðlaug Kirstinsdóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson. Ljósm. bj.

Björn Bjarki er nýr sveitarstjóri Dalabyggðar

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Björn Bjarki Þorsteinsson verður næsti sveitarstjóri í Dalabyggð, en skrifað var undir samning við hann fyrr í dag. Bjarki hefur starfað sem framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalarheimilis í Borgarnesi, síðastliðin 15 ár. Hann hefur m.a. setið í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu síðastliðin 10 ár, lengst af sem varaformaður og síðar formaður þar til í apríl síðastliðinn. Bjarki hefur áralanga reynslu af sveitarstjórnarstörfum en hann sat í sveitarstjórn Borgarbyggðar frá 2002-2018, þar af sem forseti sveitarstjórnar í tvö kjörtímabil. Einnig hefur hann gegnt formennsku m.a. í byggðarráði og fræðslunefnd.\r\n\r\nBjörn Bjarki hefur setið í fjölda stjórna, ráða og nefnda og má þar nefna stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, Háskólans á Bifröst, SSV og er nú formaður stjórnar Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Hann hefur jafnframt verið virkur þátttakandi í íþrótta- og æskulýðsmálum og gegndi m.a. formennsku í körfuknattleiksdeild Skallagríms um árabil. Hann var annar af upphafsmönnum Sauðamessu á sínum tíma og einn stofnanda Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Á árum áður starfaði Bjarki sem sölu- og markaðsstjóri hjá Borgarnes kjötvörum og við verslunar- og innkaupastjórnun hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, 11-11/Kaupás og Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík.\r\n\r\nBjarki lauk MBA námi frá Háskóla Íslands í júní síðastliðnum. Hann er giftur Guðrúnu Ólafsdóttur, sem starfar á Bifröst, og eiga þau fjögur uppkomin börn. Reiknað er með að Bjarki muni koma til starfa í ágúst nk.\r\n\r\nSveitarstjórn Dalabyggðar bauð Björn Bjarka velkominn til starfa við undirritun samnings fyrr í dag.\r\n\r\nUmsækjendur voru þrettán\r\n\r\nAlls bárust 13 umsóknir um starfið en tveir umsækjendur drógu nafn sitt til baka. Aðrir umsækjendur voru:\r\n
\r\n \t
Ari Jóhann Sigurðsson, sérkennari
\r\n \t
Barbara K. Kristjánsdóttir, mannauðs- og gæðastjóri
\r\n \t
Glúmur Baldvinsson, sjálfstætt starfandi
\r\n \t
Gunnsteinn Björnsson, sjálfstætt starfandi
\r\n \t
Hróðmar Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri
\r\n \t
Ingvi Már Guðnason, verkstjóri
\r\n \t
Jón Eggert Guðmundsson, yfirmaður kerfismála
\r\n \t
Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri
\r\n \t
Sigurður Sigurðarson, sjálfstætt starfandi
\r\n \t
Viggó E. Viðarsson, flokksstjóri
\r\n \t
Örn Haukur Magnússon, framkvæmdastjóri.
\r\n

"innerBlocks": []

Björn Bjarki er nýr sveitarstjóri Dalabyggðar - Skessuhorn