Vestlendingar í öndvegi. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker sigraði barnaflokkinn á hinum 17 vetra stóðhesti Þyt frá Skáney með einkunnina 9,01. Hér tekur hún við bikar frá Guðna Halldórssyni, formanni Landssambands hestamanna, og Gunnari Sturlusyni forseta FEIF. Ljósm. sþ

Vestlenskt hestafólk uppskar vel á Landsmóti á Hellu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í liðinni viku var Landsmót hestamanna haldið á Hellu á Rangárvöllum. Veðrir spilaði stórt hlutverk á mótinu, var fremur fúlt flesta mótsdagana. Á fimmtudeginum þurfti að fresta dagskrá og fella dagskrárliði út, meðal annars hópreiðina. Á mótinu kom fram rjóminn af íslenskum gæðingum og knöpum en einkunnir voru afburða háar og oft mjótt á munum milli efstu sæta. A-flokk gæðinga sigruðu þeir Kolskeggur frá Kjarnholtum og Sigurður Sigurðarson með einkunnina 9,01 en Borgfirðingurinn Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólsstað höfnuðu í 5. sæti með 8,90 í einkunn. B-flokk gæðinga sigraði Ljósvaki frá Valstrýtu með 9,21 í einkunn.\r\n\r\nTvær töltgreinar voru á dagskrá landsmótsins í ár. Keppt var í T1 og T2 en slaktaumatölt var í fyrsta skipti keppnisgrein á landsmóti. Hefðbundna töltið T1 sigraði Árni Björn Pálsson á Ljúf frá Torfunesi með 9,17 en slaktaumatöltið T2 sigraði Hinrik Bragason á Kveik frá Hrísdal. Jakob Svavar Sigurðsson keppti fyrir Dreyra og náði 5. sæti í T2. Jakob hafnaði svo t.d. í 2. sæti í B-flokki, 4.-5. sæti í skeiðgreinum ásamt því að sýna fjölda hrossa í kynbótadómi. Þorgeir Ólafsson var einnig vel sýnilegur á mótinu en hann keppti fyrir Borgfirðing t.d. í skeiðgreinum og fimmgangi þar sem hann hafnaði í 6. sæti. Kynbótadómar skiluðu svo sögulegum árangri en Sindri frá Hjarðartúni dæmdist í kynbótadómi með hæstu hæfileikaeinkunn sem gefin hefur verið, eða 9,38 og er með aðaleinkunn 8,99. Sindra sýndi Hans Þór Hilmarsson.\r\n\r\n<strong>Vestlensk hestamennska í góðum höndum</strong>\r\n\r\nTíu ræktunarbú sýndu það besta úr sinni ræktun en tvö bú voru frá Vesturlandi; Hrísdalur og Berg á Snæfellsnesi. Borgfirðingurinn Kristín Eir Hauksdóttir Holaker sigraði í barnaflokki með afburðum á stóðhestinum Þyt frá Skáney. Þytur er 17 vetra gamall en móðir Kristínar, Randi Holaker, hefur um árabil keppt á Þyt með góðum árangri í hinum ýmsu greinum í gæðinga- og íþróttakeppnum. Í barnaflokki keppti einnig Snæfellingurinn Haukur Orri Bergmann á Hnokka frá Reykhólum en þeir höfnuðu í 4. sæti með einkunnina 8,75. Óhætt er að fullyrða að framtíð vestlenskrar hestamensku er í góðum höndum ræktenda og knapa.\r\n\r\nÖll úrslit af mótinu má m.a. finna á hestafrettir.is og á appinu LH Kappi.",
  "innerBlocks": []
}
Vestlenskt hestafólk uppskar vel á Landsmóti á Hellu - Skessuhorn