
Einar Margeir setti eitt Íslandsmet á EM í sundi. Ljósm.ia.is
Einar Margeir stóð sig vel á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hinn 17 ára Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi ÍA synti frábærlega á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu í liðinni viku. 494 unglingar frá 42 löndum tóku þátt. Í 100 metra bringusundi setti hann Íslandsmet í unglingaflokki þegar hann bætti sinn besta tíma um rúma sekúndu og synti á tímanum 1.03.45 en gamla metið átti Árni Már Árnason á tímanum 1.04.07 frá árinu 2005. Þessi tími skilaði Einari Margeiri tólfta besta tímanum í undanrásum og synti hann aftur í 16 manna undanúrslitum. Þar synti hann á tímanum 1.03.77 og hafnaði í 15. sæti. Einar var á yngra árinu á Evrópumeistaramótinu og aðeins þrír á sama ári syntu hraðar en Einar í 100 metra bringusundinu á mótinu.\r\n\r\nEinar bætti sig sömuleiðis í 200 metra bringusundi um rúma sekúndu og synti á tímanum 2.23.45 og það skilaði honum 34. sæti. Hann hefur bætt sig um níu sekúndur frá því í janúar í þessari grein.\r\n\r\nÍ 50m bringusundi synti hann við sinn besta tíma 29,19 og endaði í 23. sæti og aðeins fjórir á sama aldri og Einar syntu greinina hraðar. Fín frammistaða hjá Einari Margeiri sem núna tekur sér smá hlé frá æfingum og keppni en æfingar hefjast aftur í ágúst.",
"innerBlocks": []
}