5G samband komið í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú hefur Ólafsvík bæst í hóp þeirra bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G neti og mörgum bæjarbúum stendur því til boða áður óþekktur nethraði. Nú hefur Nova sett upp 65 senda í öllum landshlutum og er áætlað að þeir verði orðnir 200 árið 2024. „Fyrir bæjarbúa í Ólafsvík þýðir innleiðingin mun meiri afköst en áður hefur þekkst, hvort sem er í gegnum síma eða jarðtengingar, auk þess sem 5G þjónusta mun veita íbúum gífurlega hratt streymi, styttri svartíma og niðurhal á ofurhraða,“ segir Benedikt Ragnarsson framkvæmdastjóri fjarskipta Nova í tilkynningu.\r\n\r\n5G mun að jafnaði skila 150-200 Mb/s hraða á sekúndu og fara reglulega upp fyrir 1.000 Mb/s. „Það þýðir að þeir íbúar sem eru með tæki sem styðja 5G eru með eina hröðustu nettengingu sem fyrirfinnst á Íslandi og reyndar heiminum öllum. 5G hraði jafnast á við öflugustu ljósleiðaratengingar þar sem þú getur hlaðið niður allt að 2,3 GB á sekúndu og svartíminn er undir 10 millisekúndur,“ segir Benedikt.",
  "innerBlocks": []
}
5G samband komið í Ólafsvík - Skessuhorn