
Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri í Borgarbyggð tók við fyrstu rafskútunum í Borgarnesi í hádeginu í dag. Hér er hann ásamt rekstraraðilum Hopp Akraness. Síðan spennti Stefán Broddi hjálminn á höfuðið og brunaði af stað.
Tuttugu rafskútur mættar í Borgarnes
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tveir tugir af rafskútum bættust í umferðina í Borgarnesi í hádeginu í dag þegar fyrirtækið Hopp Akranes hóf þar formlega starfsemi. Eins og sagt hefur verið frá hér í Skessuhorni hefur rafskútum fjölgað til muna á Akranesi, en þangað komu þær í fyrsta sinn fyrir rúmu ári og voru þá fjörutíu talsins. Skúturnar eru á vegum fyrirtækisins Hopp Akranes sem hefur nú fest kaup á sjötíu nýjum skútum og hefur jafnframt sett tuttugu skútur í Borgarnes. Er það í fyrsta sinn sem slík þjónusta er í boði í bænum. Það var Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri sem setti á sig hjálminn og tók fyrsta rúntinn á nýrri rafskútu í hádeginu í dag. Það eru þau Iris Gústafsdóttir, Alexandra Jóna Hermannsdóttir og Gunnar Örn Gíslason sem standa að fyrirtækinu Hopp Akranes. Rafskúturnar sem hér um ræðir eru framleiddar í Kína.\n\nNotkun rafskúta er með þeim hætti að notendur aflæsa þeim með smáforriti (appi) og greiða startgjald og vægt tímagjald því til viðbótar. Startgjaldið er kr. 100 og svo 33 kr. á mínútu. Þegar ferð lýkur er gripnum lagt innan skilgreinds þjónustusvæðis.\n\nVélknúin hlaupahjól eins og þau eru skilgreind í lögum (rafhlaupahjól, rafmagnshlaupahjól, rafskútur, rafskottur) tilheyra flokki reiðhjóla. Slíkum farartækjum má þó ekki aka á akbraut en þau lúta að öðru leyti sömu reglum og reiðhjól. Á það t.d. við um öryggisbúnað og eindregið er mælt með að allir noti hjálma. Samkvæmt lögum er börnum og ungmennum undir 16 ára aldri skylt að nota hjálm við hjólreiðar.",
"innerBlocks": []
}