{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Regína Ásvaldsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Undanfarin fimm ár hefur Regína verið sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þá hefur hún einnig starfað sem framkvæmdastjóri Festu, félags um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, verið skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar. Þrjátíu sóttu um bæjarstjórastólinn í Mosfellsbæ og vildu taka við af Haraldi Sverrissyni, sem hafði gegnt stöðunni í fimmtán ár, en fimm drógu síðan umsóknir sínar til baka.\r\n\r\n<a href=\"https://www.visir.is/g/20222285406d/regina-verdur-baejarstjori-mosfellsbaejar\">Það var visir.is sem greindi fyrst frá.</a>",
"innerBlocks": []
}