Fréttir

true

Veita Skógræktinni ekki framkvæmdaleyfi á tveimur jörðum

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps 5. júlí síðastliðinn var tekin fyrir umsókn Skógræktar ríkisins um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á tveimur jörðum í hreppnum. Annars vegar var sótt um leyfi til að planta 50 þúsund birkiplöntum á 36 ha svæði í landi Bakkakots, sem að mestu er ofan 300 metra hæðar yfir sjó. Þar sem…Lesa meira

true

Hreinsuðu upp olíuleka

Olíuleka varð vart á nokkrum stöðum í Grundarfirði í morgun. Brást Slökkvilið Grundarfjarðar hratt við og hreinsaði þar sem mest var, við Kjörbúðina á Grundargötu. Var hreinsunarstarfi lokið upp úr klukkan 13. Ekki er vitað úr hvaða ökutæki olían lak.Lesa meira

true

Lemon míní á Olís í Borgarnesi

Veitingastaðurinn Lemon hefur opnað nýjan stað á Olís í Borgarnesi. Um er að ræða míní útgáfu af veitingastaðnum en þar er hægt fá brot af því besta frá Lemon. Fjórar samlokur eru í boði; Spicy chicken, Chickencado, Parmella og Pescado og fjórir safar, Nice Guy, Alabama, Good Times og Elvis. Lemon er skyndibitastaður sem að…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði leik í toppslagnum

Skallagrímur mætti í gærkvöldi liði Árbæinga í toppslag A-riðils 4. deildar í knattspyrnu. Var leikurinn á Fylkisvellinum í Árbæ. Fyrir leikinn var Skallagrímur í öðru sæti deildarinnar og Árbæingar í því þriðja, tveimur stigum á eftir Skallagrími. Árbæingar byrjuðu leikinn betur og var það Eyþór Ólafsson sem skoraði fyrsta mark leiksins á 38. mínútu fyrir…Lesa meira

true

Tvö útköll björgunarsveita í gær

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út á fjórða tímanum í gær að gönguleiðinni yfir Síldarmannagötur innst í Hvalfirði, en leiðin liggur yfir fjalllendið og í Skorradal. Tilkynnt var um konu sem hafði verið á göngu, slasast á fæti og gat ekki gengið. Hún var staðsett ofarlega í hlíðum fjallsins í um 400 m hæð. Sjúkraflutningamenn…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna veðurs

Til hádegis í dag gildir gul viðvörun fyrir veðursvæðið Faxaflóa vegna suðvestan- og vestan hvassviðris. Veðrið gengur fyrst niður hér vestanlands, en áfram í dag gildir gul viðvörun fyrir allt miðnorðurland, suðausturland og miðhálendið. Við Faxaflóa verður suðvestan 10-18 m/s, hvassast syðst og vindhviður að 25-30 m/s. Við slíkar aðstæður er varasamt að vera á…Lesa meira

true

Kallað eftir gögnum vegna veglagningar í Dragafelli

Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns voru framkvæmdir Skógræktar ríkisins vegna vegagerðar í hlíðum Dragafells í Skorradal stöðvaðar í byrjun júni þar sem um var að ræða óleyfisframkvæmd. Dragafell er í landi Stóru-Drageyrar þar sem samkvæmt aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 er afmarkað skógræktarsvæði. Umræddur vegur er þó utan þess. Í fundargerð hreppnefndar Skorradalshrepps frá…Lesa meira

true

Hlutavelta til hjálpar í Úkraínu

Þessir vösku krakkar héldu hlutaveltu á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal um síðustu helgi og afhentu Rauða krossinum afraksturinn, 9000 kr sem þau gefa til hjálparstarfs í Úkraínu. Hér eru þau Óðinn Ísaksson 9 að verða 10 ára frá Stykkishólmi, Sonia Fjóla Mileris 9 að verða 10 ára, frá Reykjavík og Jenný Dagbjört Stefánsdóttir 9 ára…Lesa meira

true

Esjuskálinn hefur verið opnaður í Baulunni

Baulan er verslun og veitingastaður við þjóðveg eitt í Borgarfirði en nú hefur fyrirtækið Esjuskálinn tekið við rekstrinum. Fríða Birna Þráinsdóttir er eigandi Esjuskálans og þar af leiðandi nýr eigandi Baulunnar. Hún er frá Laugarbakka í Miðfirði en býr á Kjalarnesi ásamt manni sínum og tveimur dætrum. Hún segir Bauluna þess vegna færa sig nær…Lesa meira

true

Halda til björgunar á Síldarmannagötum

Björgunarsveitir á öllu sunnanverðu Vesturlandi voru nú síðdegis kallaðar út til fjallabjörgunar. Einstaklingur er slasaður á fæti í um 370 metra hæð í töluverðum bratta á gönguleiðinni yfir Síldarmannagötur, sem liggur frá Hvalfirði í Skorradal. Nú er búið að kalla út björgunarsveitirnar Heiðar, Ok, Brák og Björgunarfélag Akraness.Lesa meira