
Horft yfir hluta jarðarinnar á Stóru-Drageyri þar sem Skógræktin sótti um að planta í. Ljósm. mm.
Veita Skógræktinni ekki framkvæmdaleyfi á tveimur jörðum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps 5. júlí síðastliðinn var tekin fyrir umsókn Skógræktar ríkisins um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á tveimur jörðum í hreppnum. Annars vegar var sótt um leyfi til að planta 50 þúsund birkiplöntum á 36 ha svæði í landi Bakkakots, sem að mestu er ofan 300 metra hæðar yfir sjó. Þar sem svæðið er umfram 20 ha er framkvæmdin háð framkvæmdaleyfi, meðal annars m.t.t. brunavarna sbr. gildandi aðalskipulag. Þá sótti Skógræktin einnig um framkvæmdaleyfi fyrir fjölnytjaskóg með blönduðum trjátegundum á 188,7 ha svæði í landi Stóru-Drageyrar.\r\n\r\nSkipulags- og byggingarnefnd hafnaði báðum þessum umsóknum um framkvæmdaleyfi þar sem þær samræmast ekki aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.",
"innerBlocks": []
}