Tvö útköll björgunarsveita í gær

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út á fjórða tímanum í gær að gönguleiðinni yfir Síldarmannagötur innst í Hvalfirði, en leiðin liggur yfir fjalllendið og í Skorradal. Tilkynnt var um konu sem hafði verið á göngu, slasast á fæti og gat ekki gengið. Hún var staðsett ofarlega í hlíðum fjallsins í um 400 m hæð. Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk hélt á fjallið, bjó um konuna til flutnings og báru hana um tveggja kílómetra leið niður í sjúkrabíl.\r\n\r\nKlukkutíma eftir útkallið í Hvalfirði voru björgunarsveitir á Snæfellsnesi kallaðar út. Kona hafði fallið af hestbaki á Löngufjörum. Sjúkrabíll kemst ekki á vettvang og var því óskað eftir aðstoð björgunarsveita til að flytja hana í sjúkrabíl.\r\n\r\nMeðfylgjandi myndir eru frá Landsbjörgu af aðgerðum á Síldarmannagötum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54723,54724\"]",
  "innerBlocks": []
}
Tvö útköll björgunarsveita í gær - Skessuhorn