{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Til hádegis í dag gildir gul viðvörun fyrir veðursvæðið Faxaflóa vegna suðvestan- og vestan hvassviðris. Veðrið gengur fyrst niður hér vestanlands, en áfram í dag gildir gul viðvörun fyrir allt miðnorðurland, suðausturland og miðhálendið. Við Faxaflóa verður suðvestan 10-18 m/s, hvassast syðst og vindhviður að 25-30 m/s. Við slíkar aðstæður er varasamt að vera á ferð með ökutæki með aftanívagna og þau sem taka á sig mikinn vind.",
"innerBlocks": []
}