Skallagrímur tapaði leik í toppslagnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur mætti í gærkvöldi liði Árbæinga í toppslag A-riðils 4. deildar í knattspyrnu. Var leikurinn á Fylkisvellinum í Árbæ. Fyrir leikinn var Skallagrímur í öðru sæti deildarinnar og Árbæingar í því þriðja, tveimur stigum á eftir Skallagrími.\r\n\r\nÁrbæingar byrjuðu leikinn betur og var það Eyþór Ólafsson sem skoraði fyrsta mark leiksins á 38. mínútu fyrir heimaliðið og var það eina mark fyrri hálfleiks.\r\n\r\nUm miðjan síðari hálfleikinn bættu Árbæingar við öðru marki og var þar að verki Pape Mamadou Faye. Á næstsíðustu mínútu leiksins náðu heimamenn að bæta við þriðja markinu og var þar Sæmundur Sven A Schepski að verki. Á lokamínútu leiksins svöruðu Skallagrímsmenn fyrir sig og minnkuðu muninn í 3:1 en markið skoraði Sigurjón Logi Bergþórsson. Lengra komust þeir ekki og urðu þetta lokatölur leiksins.\r\n\r\nVið úrslitin skutust Árbæingar einu stigi upp fyrir Skallagrím með 19 stig í öðru sæti en Skallagrímur fór í það þriðja með 18 stig. Hvíti Riddarinn trónir á toppnum með 22 stig.\r\n\r\n<em>Næsti leikur Skallagríms er Vesturlandsslagur gegn Reyni frá Hellisandi, mánudaginn 11. júli og hefst leikurinn kl. 20:00.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur tapaði leik í toppslagnum - Skessuhorn