Kassar með skógarplöntum í hlíðum Dragafells. Myndin var tekin 8. júní sl. Ljósm. mm.

Kallað eftir gögnum vegna veglagningar í Dragafelli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns voru framkvæmdir Skógræktar ríkisins vegna vegagerðar í hlíðum Dragafells í Skorradal stöðvaðar í byrjun júni þar sem um var að ræða óleyfisframkvæmd. Dragafell er í landi Stóru-Drageyrar þar sem samkvæmt aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 er afmarkað skógræktarsvæði. Umræddur vegur er þó utan þess. Í fundargerð hreppnefndar Skorradalshrepps frá 11. júní sl. kemur fram að vegaframkvæmdin hafi áhrif á umhverfið, breyti ásýnd þess og sé ekki í samræmi við aðalskipulag auk þess sem samþykki leyfisveitanda um útgáfu framkvæmdaleyfis lá ekki fyrir. Sama gildir um plöntun í hlíðum Dragafellsins. Stöðva þurfti framkvæmdir tengdar skógræktinni á svæðinu í tvígang enda hafði í hvorugu tilfelli verið óskað eftir framkvæmdaleyfi hjá sveitarfélaginu. Í hinu tilvikinu hafði verið plægt til undirbúnings niðursetningar plantna á skilgreindu hverfisverndarsvæði.\r\n\r\nHreppsnefndin staðfesti stöðvun beggja framkvæmdanna á fundi sínum 11. júní og sat Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri fundinn undir viðkomandi dagskrárliðum. Var skipulagsfulltrúa síðan falið að vinna málið áfram í samstarfi við skipulagsnefnd hreppsins. Málið var svo tekið fyrir þar 21. júní þar sem minnisblað skipulagsfulltrúa var lagt fram og kynnt. Óskað var í framhaldinu eftir gögnum frá Skógræktinni til að vinna málið áfram.\r\n\r\nÞess má geta að fleiri mál hafa að undanförnu verið að koma upp í Borgarfirði þar sem skógrækt stríðir gegn aðalskipulagi viðkomandi svæða. Í gær var t.d. eitt slíkt mál tekið fyrir af hreppsnefnd Skorradalshrepps og snertir það jörðina Bakkakot þar sem umráðandi lands var að gróðursetja á um 20 ha svæði án framkvæmdaleyfis.",
  "innerBlocks": []
}
Kallað eftir gögnum vegna veglagningar í Dragafelli - Skessuhorn